Monday, July 28, 2014

REVIEW | SLEEK POUT PAINT IN MINX




I think I've found a new obsession of mine, the Pout Paints from Sleek. I've already shown you guys the shade Lava and told you all about how much I love it. I have bought three new shades, a pink, a white and a blue - just so I can mix things up you know. I'll show you the pink one today and I will be doing a post on the other ones and how I mix them together.

The pink one I got is called Minx, it's more of a pinky nude and it's very pretty. As with the other one, it applies like a dream. It's opaque right away and it has a nice sheen. It doesn't last on the lips quite as well as the Lava shade but it's still going strong after 4 hours. As I've said, you need a lip brush to apply this and as the packaging says "a little goes a long way" - so just squeeze a tiny little dot on the back of your hand and you will be good to go.

I love these Pout Paints and I recommend that you try them out! They are available on sleekmakeup.com for $7.49 a pop and if you're in Iceland - haustfjord.is for 1490 krónur!

//Ég hef fundið nýtt uppáhalds, Pout Paint-in frá Sleek. Ég hef áður sýnt ykkur litinn Lava og sagði ykkur hvað ég var ánægð með hann. Síðan ég keypti hann er ég búin að kaupa þrjá aðra liti, bleikan, hvítan og bláan - til að blanda saman og gera fleiri fína liti. Ég ætla að sýna ykkur bleika litinn í dag en ég mun gera færslu bráðlega um hvernig hinir eru og hvernig ég blanda þeim saman.

Bleiki sem ég keypti í þetta skiptið heitir Minx og er meira svona bleikur nude litur. Mjög sætur. Eins og með hinn litinn þá er mjög auðvelt að bera hann á, hann er með þétta þekju í fyrstu umferð og með fallegan gloss. Hann endist ekki alveg jafn lengi og Lava en liturinn er samt í góðu lagi eftir 4 tíma. Eins og ég sagði í síðustu færslunni þá þarftu að nota varabursta með þessari vöru, kreistir smávegis á handarbakið á þér og notar svo burstann til að setja litinn á varirnar.

Æðisleg þessi Pout Paint og mæli með því að þið prufið. Aðeins 1490 krónur á haustfjord.is og til í fullt af fallegum litum!


Thursday, July 24, 2014

THE 90'S LIP | KYLIE JENNER INSPIRED

WHIRL LIPLINER, TWIG LIPSTICK AND ENCHANTED ONE LIPSTICK - ALL MAC

It's safe to say that Kylie Jenner 's 90's lips have taken the world by storm. I am a huge Kardashian/Jenner fan and Kylie has been killing it lately with her perfect style and flawless make up. I've seen eeeeveryone on YouTube doing a tutorial on how to achieve her luscious lips so I thought I'd jump on the bandwagon and show you guys the 90's lips I find suit me the best. Now bare in mind, Kylie and I couldn't be more different - I'm fair with blue eyes and blonde hair and she's tanned with brown eyes and black hair - not exactly twins.

Her lipliner of choice is Whirl from MAC (according to everyone on YT and Instagram). Whirl is a beautiful pinky brown shade - darker then the usual nudes. I am a big fan of lipliners from MAC and this one didn't disappoint. Now I don't know which lipstick she uses but I found two that work nicely for me (YSL Rouge Velupte #3 is also gorgeous). First off is Twig - a satin finish, browny pink. This paired with Whirl is my favorite combo of the moment. Another great lipstick paired with Whirl is Enchanted One from MAC'S Alluring Aquatic collection. It's way more brown then Twig and it has a matte finish.

//Ég held mér sé óhætt að segja að 90's varirnar á Kylie Jenner séu búnar að ná heimsfrægðum. Ég er mikill Kardashian/Jenner aðdáandi og mér finnst Kylie vera með virkilega flottan stíl og alltaf með æðislegt make up. Allir á YouTube eru búnir að gera sína útgáfu af 90's/Kylie Jenner vörunum en ég ákvað að sýna ykkur mín uppáhalds combo fyrir þetta lúkk. Ég veit vel að ég og Kylie eigum lítið sameiginlegt - ég er ljós, bláeygð og ljóshærð og hún vel tönuð, brúneygð og með svart hár.

Varablýanturinn sem hún notar er Whirl frá MAC (samkvæmt öllum á YT og Instagram). Whirl er fallegur brúnbleikur, í dekkri kantinum. Ég elska varablýantana frá MAC og þessi var æðislegur eins og hinir sem ég hef prufað. Ég veit ekki hvaða varalit hún notar en ég vildi sýna ykkur tvo sem mér finnst virka vel (YSL Rouge Velupte #3 er líka æði). Fyrst er það Twig - dökkur brúnbleikur með satin áferð. Ég er búin að vera að nota Whirl og Twig saman mjög mikið uppá síðkastið. Annar sem er fallegur paraður með Whirl er Enchanted One frá Alluring Aquatic línunni frá MAC. Hann er meira eins og ljós brúnn en er virkilega flottur yfir Whirl.

Whirl lipliner from MAC all over the lips // Whirl varablýanturinn yfir allar varirnar

Whirl lipliner paired with Twig lipstick (both MAC) // Whirl varablýanturinn og Twig (bæði MAC)

Whirl paired with Enchanted One lipstick from MAC // Whirl paraður með Enchanted One frá MAC

PS. I am so sorry for the lighting in these pictures
PS. Ég afsaka hvað birtan er skrítin á þessum myndum

Wednesday, July 23, 2014

REVIEW | YSL TOP SECRETS ALL-IN-ONE BB CREME


BARE FACE VS. YSL TOP SECRETS ALL-IN-ONE BB CREME IN CLEAR

FULL FACE OF MAKE UP USING YSL TOP SECRETS ALL-IN-ONE BB CREME IN CLEAR

I am here today to tell you about a new favorite of mine, the amazing YSL Top Secrets All-in-One BB Creme* - the first BB cream that I've actually been really happy with. It really is the perfect base for summer, super light and natural with SPF 25 - PA++. It can be used by itself for lighter coverage and underneath foundation for fuller coverage.

I have the shade Clear, which at first looks like it's going to be way too light - but adjusts to my skin tone once blended in. It comes in a convenient squeezy tube and I usually just apply it with my hands but it also works great with a brush. It simply enhances your skin and evens out the skin tone. You are left with a very natural, glowy finish - I absolutely love it. The coverage is very, very sheer so if you've got some spots, you'll need to cover them with a concealer. It is great for those natural make up days. For me this lasted for a good 5-6 hours before it got shiny (I've got combo skin with an oily t-zone).

I'd say this BB cream is best suited for people with dry or combination skin - if you are very oily you will most likely need to use a primer underneath and set it with a powder so it doesn't get too shiny throughout the day. This pretty thing is available in three shades, Clear, Medium and Dark so if you can find a good match, give it a go! 

//Í dag ætla ég að tala um nýtt uppáhald, Top Secrets All-in-One BB Creme frá YSL*. Fyrsta BB kremið sem ég virkilega ánægð með. Þetta BB krem er hinn fullkomni farði fyrir sumarið, léttur og náttúrulegur með SPF 25 PA++. Hægt er að nota kremið eitt og sér fyrir létta þekju eða undir öðrum farða fyrir fullkomna þekju.

Ég nota litinn Clear sem lítur fyrst út fyrir að vera alltof ljós, en þegar búið er að blanda honum í húðina aðlagast hann að húðlitnum mínum fullkomnlega. BB kremið kemur í góðri kreisti túbu og ég nota oftast bara  hendurnar til að bera hann á en hann er líka fallegur blandaður með bursta. BB kremið skilur eftir sig fallega, náttúrulega og glowy áferð - ég elska hvernig það lítur út á húðinni minni. Þekjan er mjög, mjög lítil svo ef þú ert með bólur eða eitthvað sem þú villt þekja betur þá þarftu að nota hyljara. Þetta er fullkominn farði fyrir náttúrulegar farðanir. Kremið entist í góða 5-6 klukkutíma á mér áður en það byrjaði að glansa mikið.

Ég myndi segja að þetta BB krem sé best fyrir þá sem eru með þurra eða blandaða húð - ef þú ert með feita húð mæli ég með að nota primer undir og setja það með léttu púðri svo að húðin glansi ekki of mikið þegar líður á daginn. Það kemur í þremur litum, Clear, Medium og Dark svo ef þú finnur þinn lit mæli ég með því að þú prufir það! 


Friday, July 18, 2014

BARRY M GOODIES | DAZZLE DUST, LIP PAINT & GELLY NAIL PAINT





I recently got some Barry M products from Fotia.is. First off, the Dazzle Dust in the shade #104 or Venus*. Dazzle Dusts are loose eyeshadows that come in a little pot. I prepped my eyelid using my Groundwork Paint Pot from MAC and then I applied Venus all over the lid with a flat brush. The color was super pretty and pigmented and it's got the loveliest fine glitter. It didn't fall down all over my face and it lasted on my lids all day long.

The lipstick I am wearing in the pictures is a bit out of my comfort zone. It is the color Black or #37. It's not completely opaque at first swipe so you have to build it up to get an intense black. The lipstick has a nice sheen and stays on the lips pretty well - it also keeps my lips nice and moisturised. This guy actually surprised me! I really liked the way it looked on me (the boyfriend did not agree - lol).

Lastly is my favorite nailpolish at the moment, a beautiful minty blue called Sugarapple from Barry M's Gelly line. I've talked about their polishes before, here - the Gelly formula is perfect. It's thick and opaque after one coat and it lasts for daaays.

I definitely recommend trying Barry M products and if you're in Iceland you should check out Fotia.is. Sigríður, the owner of Fotia, was nice enough to give me a discount code for you guys - just use "ELINLIKES" to get 15% off your purchase.

//Ég vildi deila með ykkur nokkrum vörum sem ég fékk nýlega frá Fotia.is, þær eru allar frá merkinu Barry M en ég hef talað um naglalökk frá þeim áður, hérna. 

Ég ætla fyrst að tala um Dazzle Dustið í lit númer 104, Venus*. Dazzle Dust eru lausir augnskuggar sem koma í lítilli dollu. Ég notaði Paint Pot frá MAC í litnum Groundwork sem grunn á augun og setti síðan Venus yfir allt augnlokið með flötum bursta. Liturinn var þvílíkt fallegur og pigmentaður með æðislegu smágerðu glimmeri. Hann féll ekkert niður þegar ég setti hann á (maður verður bara að passa að hrista vel af burstanum, eins og með öll svona pigment) og hann hélst vel á allan daginn. 

Varaliturinn sem ég er með á myndinni er nokkuð útúr þægindarammanum. Hann er í litnum Black eða númer 37*. Hann þekur ekki alveg í fyrstu þekju og þú þarft að fara nokkrum sinnum yfir til að ná svarta litnum alveg. Varaliturinn er með fallegan glans og helst nokkuð vel á vörunum, hann þurrkar varirnar ekkert og heldur þeim mjúkum og fínum. Hann kom mér virkilega á óvart og ég var að fýla hann á mér! (kærastinn var ekki sáttur - lol).

Síðast en ekki síst er það uppáhalds naglalakkið þessa stundina, æðislegt myntu blátt sem kallast Sugarapple frá Barry M Gelly línunni. Ég talaði um Barry M naglalökkin hér, en Gelly formúlan er æðisleg. Hún er þykk og þekur alveg í fyrstu stroku - svo helst það líka á í marga, marga daga. 

Ég mæli með því að skoða vöruúrvalið á Fotia.is! Vörurnar eru á frábæru verði og það er margt fallegt í boði. Sigríður, eigandi Fotia, var svo indæl að bjóða mér afsláttarkóða fyrir ykkur! Til að fá 15% afslátt af öllu á fotia.is notaru kóðann "ELINLIKES" rétt áður en þú borgar. Happy shopping!



Wednesday, July 16, 2014

MY MAKE UP COLLECTION

It's time for my make up collection! I've gotten sooo many questions on how I store my make up so I decided to do an in depth post before I move. I would've filmed a video on this but I'm still too shy to be on film, so I will just insert pictures and try to explain everything. Hopefully one day, I'll find the courage to start my own YouTube channel - but today's just not the day haha x Hope you enjoy this and if you've got any questions feel free to ask in the comments below!

//Ég er búin að fá ótrúlega margar spurningar um hvernig ég geymi förðunarvörurnar mínar svo ég ákvað að skella loksins í eina langa færslu með myndum áður en ég flyt. Ég hefði tekið upp myndband en ég er enn of feimin til að tala fyrir framan myndavélina, svo ég set bara inn myndir og reyni að útskýra allt eins vel og ég get. Ég er að hugsa um að gera YouTube myndbönd bráðlega - en ekki í dag, ég er ekki alveg tilbúin í það. Vonandi líkar ykkur þessi færsla og ekki hika við að spyrja ef það er eitthvað!



Let's start off with the big items. Most of these are pretty standard and you've probably seen them in other make up collections. The table, drawers and mirror are all from Ikea. The table is from the MALM line and is great for storing make up, the mirror is called STAVE and the drawers are called ALEX and I love them, they are super sturdy and keep a lot of stuff.

//Byrjum á stóru hlutunum. Þú hefur eflaust séð þessar vörur í öðrum make up collections. Borðið, skúffueiningin og spegillinn eru frá Ikea. Borðið kallast MALM og er frábært til að geyma förðunarvörur, spegillinn kallast STAVE og skúffueiningin kallast ALEX og er frábær, nóg af plássi.





I got this little acrylic storage in a store here in Iceland but you can get it on eBay, here.  I can't say I love it but it's fine until I can get my hands on the Muji drawers. The lipstick holder is from Sostrene Grene (as you can tell, I am in need of a bigger lipstick holder). In these drawers I keep my most used lipsticks, eyebrow products and face products. Along with the Nuxe Reve De Miel lip moisturiser and of course, some hand sanitiser.

//Ég fékk þessa litlu acrylic hirslu í Rúmfó en hún er líka til á eBay, hér. Ég er ekkert svaka ánægð með hana en hún er nóg þangað til ég næ að kaupa mér Muji skúffur. Varalita hirslan er úr Sostrene Grene en eins og þú sérð þá þarf ég að kaupa mér stærri hirslu fyrir varalitina. Í þessum skúffum er ég aðallega með mínar mest notuðu varaliti, augabrúna vörurnar mínar og mest notuðu andlits vörurnar (fyrir utan farða og svoleiðis).



I keep my brushes in these vases from Ikea (couldn't find a name), they fit pretty snug so I am looking for something else (if you've got any suggestions, please let me know!). I then have a bowl with stuff I haven't tried/need to photograph/need to blog about and in the little candle holders I've got my Beauty Blenders, q-tips, mascara spoolies and a powder puff. These pretty things are from a brand called iittala, the little holders are called Kastehelmi and the big bowl is called Maribowl. 

//Ég geymi burstana mína í þessum vösum frá Ikea (finn ekki nafnið), þeir eru aðeins of litlir og mig vantar eitthvað annað til að geyma þá í (ef þú veist um eitthvað sniðugt máttu endilega láta mig vita!) Ég er svo með skál og kertastjaka frá iittala. Í Maribowl skálinni geymi ég vörur sem ég á eftir að prufa/eftir að taka ljósmynda/eftir að blogga um og í  Kastehelmi kertastjökunum geymi ég Beauty Blenderana, powder puff, eyrnapinna og maskaragreiður.





In the drawer of my MALM table I keep most of my most used stuff. From lipliners, to glitters and eyeliners to my blushes and foundations. I mostly keep everything in little boxes from Rúmfatalagerinn but I also cut up some boxes for my lipsticks and glitters.
//Í MALM borðinu geymi ég mest notaða dótið mitt. Farðar, kinnalitir, augnblýantar, glimmer og allt þar á milli. Ég geymi flest allt í plast boxum úr Rúmfó og svo klippti ég líka iittala kassa fyrir varaliti og glimmer.


I keep my most of my palettes on top of my Alex drawers. I found this at a thrift shop and it's from Ikea (it's from the kitchen department), it holds my palettes pretty nicely - cheap and cheerful. There I have my UD Vice 2, 4 MAC palettes, Anastasia Contour Kit, theBalm Meet Matte, UD Naked 1,2 and 3, Lorac Pro, Anastasia Lavish and Nars Guy Bourdin palette. 

//Ég geymi flestar palletturnar mínar ofan á Alex einingunni. Ég fann þessa "hirslu" á nytjamarkaði og það er til í Ikea (í eldhúsdeildinni), það geymir palletturnar mínar nokkuð vel. Þarna er ég með UD Vice 2, fjórar MAC pallettur, Anastasia Contour Kit, theBalm Meet Matte, UD Naked 1, 2 og 3, Lorac Pro, Anastasia Lavish og Nars Guy Bourdin pallettu.









I keep the rest of my make up in my ALEX drawers. I still have a lot of space left which is great. The stuff I have in there I either don't use that often or doesn't fit in to the MALM table. Also, you know you are a make up hoarder when you have a drawer dedicated to boxes from make up products..

//Ég geymi restina af dótinu mínu í ALEX skúffunum. Það er enn nóg eftir af plássi sem er frábært. Hér geymi ég annaðhvort þær vörur sem ég nota ekki oft eða passa ekki í skúffuna í MALM borðinu. Þú veist líka að þú ert orðinn óð þegar þú ert með skúffu tileinkaða kössunum utan af förðunarvörunum þínum..

That's it! I am sorry that this post was so insanely long but I hope I answered all of your questions (if not, leave them down below!).

//Þá er það komið! Ég afsaka hvað þessi færsla er brjálæðislega löng en ég vona að ég hafi svarað öllum spurningunum sem ég er búin að fá! (ef þú ert enn með spurningar skildu þær eftir í kommentunum!) 


Monday, July 14, 2014

CURRENT FAVORITES




Gee, it's been a while since I last did a favorites post. I feel like my posts always turn out soooo long, so I'll try to keep it short and sweet today. I've been using and loving these products lately, they are all new to my collection except for one old favorite.

I am finally the owner of the award winning and oh so popular highlighting/concealing pen from YSL, yes I am talking about Touche Eclát*. I use it along with my under eye concealer and bring it up on to my cheekbones, down my nose, on my forehead, chin and cupid's bow - basically everywhere. I have it in the #2 shade and it works perfectly for me, a shade or two lighter than my actual skin tone. The texture is light and the coverage is pretty sheer so it looks very natural on the skin and blends easily. Another favorite for highlighting is the Hourglass Ambient Lighting Powder in Diffused Light, I've finally fallen in love with this guy! I got it in December and didn't really know what to think of it until a couple of months back, I love it to set my highlight. It's beautiful, looks natural and does definitely brighten things up.

The mascara I've been loving is the Hypnose Drama from Lancome* - another product that everyone seems to love. To begin with the wand was pretty difficult to work with but when you get used to it, the mascara is kinda amazing. It adds tons of volume and length. I wish the formula was a tad bit blacker, but other than that, it's really great. To keep my lips moisturized and soft, the Nuxe Reve Di Miel has changed my life - my lips have seriously never felt better. The texture is a bit more waxy than the usual lip balm. I usually apply it before going to bed and when I wake up my lips are super soft.

Lastly, I've revisited an old favorite - MAC Warm Soul mineralized blush. I recently dyed my hair white (yes, it's actually white - thanks to my amazing hairstylist Eva), so I have been going for more minimal make up so I don't look too over the top. Warm Soul adds a bit of color to my cheeks and I fell like I don't have to use a bronzer with it. It also has a bit of shimmer which gives you a pretty glow. It's such a stunning shade and definitely one of my absolute favorite blushes.

What are your current favorites?

//Díí, það er orðið svo langt síðan ég gerði færslu um uppáhalds vörur augnabliksins. Mér finnst færslurnar hjá mér alltaf verða svo rosalega langar þannig ég reyni að halda þessari í styttri kantinum. Þetta eru þær vörur sem ég er búin að vera að nota helling uppá síðkastið og elska. Þær eru allar nýjar í safnið nema ein gömul uppáhalds.

Ég á loksins hinn umtalaða og margverðlaunaða hyljara/highlighter penna frá YSL, já ég er að tala um Touche Eclát*. Ég nota hann til að birta til, undir augunum, á kinnbeinin, niður nefið, á ennnið, hökuna og fyrir ofan vörina. Ég nota lit #2 sem er fullkominn fyrir mig, 1-2 tónum ljósari en minn náttúrulegi húðlitur. Áferðin er létt og þekjan lítil svo að hann lítur náttúrulega út á húðinni og blandast auðveldlega. Annað uppáhald fyrir fallegt highlight er Ambient Lighting Powder í Diffused Light frá Hourglass. Loksins elska ég þessa vöru! Ég keypti púðrið í NY í Desember en var ekki að fýla það fyrst en núna elska ég það! Fullkomið til að setja hyljarann undir augunum og allsstaðar þar sem þú highlightar. Létt og náttúruleg áferð sem birtir til.

Maskarinn sem ég er búin að vera að nota mikið er frá Lancome og heitir Hypnose Drama* - enn ein varan sem allir elska. Ég þurfti smá tíma til að venjast burstanum en núna finnst mér hann æði. Maskarinn bæði þykkir og lengir augnhárin mjög vel. Til að halda vörunum mjúkum og fínum hefur Reve De Miel frá Nuxe bjargað lífi mínu. Þvílík snilld. Áferðin er öðruvísi en venjulegir varasalvar, þykkari og meira eins og vax. Ég nota hann áður en ég fer að sofa og þegar ég vakna eru varirnar ótrúlega mjúkar og góðar.

Síðast en ekki síst er það kinnaliturinn Warm  Soul frá MAC. Gamalt uppáhald. Ég litaði nýlega hárið hvítt (já, alveg hvítt - þökk sé hársnillingnum Evu Þórunni) og hef ég verið að fýla mig meira með minimal farðanir, svo ég endi ekki eins og einhver algjör skinka. Warm Soul gefur kinnunum fallegan lit og ég þarf ekki að nota sólarpúður þegar ég nota hann. Það er líka smá shimmer í honum svo það gefur húðinni fallegt glow. Algjört æði og klárlega einn af mínum uppáhalds kinnalitum allra tíma.

Hver eru þín uppáhöld þessa dagana?



Friday, July 11, 2014

REVIEW | YSL BABYDOLL KISS&BLUSH


YSL KISS & BLUSH #05 ROUGE EFFRONTEE* AND #08 PINK HEDONISTE*

I recently got the chance to try out some gorgeous YSL products, along with other products I got two of the Babydoll Kiss&Blush - a product for both your lips and cheeks. Of course, it's YSL, so the packaging is beautiful and luxurious and the shades are just as stunning. I got the shades #05 Rouge Effrontee and #08 Pink Hedoniste. The formula is super velvety and lasts very well both on the cheeks and lips. The applicator is perfect to apply the product on to the lips but when using these on my cheeks, I like to dab some on to the back of my hand and use a stippling brush to apply it. I am using #08 on my cheeks on both pictures.

//Ég fékk nýlega smávegis pakka frá YSL, meðal annars fékk ég Babydoll Kiss&Blush - vara sem er bæði fyrir varirnar og kinnarnar. Eins og alltaf eru pakkningarnar hjá YSL gullfallegar en litirnir eru það líka. Ég fékk litina #05 Rouge Effrontee og #08 Pink Hedoniste. Áferðin á þessum er eins og mjúkt flauel og endast litirnir mjög vel! Bæði á vörunum og kinnunum. Það er mjög auðvelt að bera litinn á varirnar en til að nota hann á kinnarnar set ég smávegis á handabakið og nota Stipple bursta frá Real Techniques til að dúmpa honum á kinnarnar. Ég er að nota lit #08 á kinnunum á báðum myndunum.

#05 Rouge Effrontee
A stunning and unique shade, a pinky red with a coral undertone.
//Ótrúlega fallegur og sérstakur rauðbleikur með kóral undirtón.

#08 Pink Hedoniste
A beautiful baby pink. I've been reaching for this one a lot lately.
//Æðislegur baby bleikur! Ég er búin að nota þennan mikið

I am loving these, they are perfect for a natural make up look and are super easy to apply. They've got 12 different shades and I've got my eye on one or two, I really want to try the orange one!

//Ég er svo ánægð með þá! Þeir eru frábærir fyrir einfalt og náttúrulegt förðunarlúkk. Það eru 12 litir til og er ég með augun á nokkrum, langar svo í þann appelsínugula!


Tuesday, July 8, 2014

REVIEW | SLEEK POUT PAINT IN LAVA



SLEEK POUT PAINT IN LAVA £4.99//$7.49//1490 ISK

As I've said so many times before, I've been on a total lip product kick lately. Whether it be a good nude, a bright pink or a stunning red - I am loving a good lippie. I recently did a review on the Sunset palette from Sleek and told you guys that Sleek recently launched here in Iceland. Well, I also picked up one of their Pout Paints in the shade Lava and I am loving it!

These Pout Paints have been compared to the very well known OCC Lip Tars. They come in a squeezy tube and a little goes a very long way. The color I got is called Lava and is a beautiful orange. I squeezed a tiny bit on the back of my hand and I applied the product to my lips using a lip brush. It's not completely opaque at first but if you apply 2-3 coats it is. The thing I loved about this, apart from being a gorgeous color, is the longevity. It has a glossy finish that actually lasts for at least 3 hours, after the gloss goes away you still have a nice color and at the end of the day you are left with a nice orange stain.

The other great thing about these is that you can mix them with other shades to get the perfect color you are looking for. I've already got my eyes on some of the other shades and I'm excited about giving them a go and mix away! Have you tried any of these Pout Paints? What are your favorite shades?

//Eins og ég hef sagt endalaust í síðustu færslum þá er ég búin að vera alveg vitlaus í fallega varaliti og glossa uppá síðkastið. Hvort sem það sé góður nude, bjartur bleikur eða klassískur rauður - ég er að fýla fallegar varir! Ég gerði nýlega færslu um Sunset Pallettuna frá Sleek og benti ykkur á að Sleek er nú í boði á Íslandi á haustfjord.is. Ég keypti mér líka einn Pout Paint af síðunni, í litnum Lava og ég elska hann!

Þessi Pout Paints hafa borið saman við sívinsælu Lip Tars frá OCC. Þeir koma í kreisti túbu og þú þarft mjög lítið til að fá góða þekju. Ég keypti litinn Lava og er hann fallegur appelsínugulur. Ég kreisti smávegis á handabakið og notaði svo varabursta til að setja litinn á varirnar. Hann þekur ekki alveg í fyrstu umferð en eftir 2-3 umferðir þá nær hann 100% þekju. Það sem ég elskaði við þessa vöru, fyrir utan fallega litinn, var hvað liturinn entist vel á vörunum! Glossinn helst á í allavega 3 tíma og þegar glossinn fer er liturinn enn á, í enda dagsins skilur hann svo eftir smávegis lit á vörunum.

Það skemmtilega við þessi Pout Paints er að það er auðvelt að blanda litunum saman og búa til þinn fullkomna lit. Ég er nú þegar með augun á nokkrum fallegum litum og hlakkar til að prufa að blanda þá saman. Pout Paints frá Sleek eru til á haustfjord.is og kosta litlar 1490 krónur! Mæli klárlega með þessum x



Blogger Template designed By The Sunday Studio.