Showing posts with label elin. Show all posts
Showing posts with label elin. Show all posts

Monday, March 2, 2015

VIDEO | COLLECTIVE HAUL - MAKE UP, CLOTHES AND OTHER STUFF



Yesterday I filmed my first haul video, I was a bit worried that no one would want to see it so I asked on instagram and everyone said YES! So here it is, my first (and definitely not last, 'cause you guys know I like shopping) haul video. It's mostly make up (that I bought myself and some stuff I recently got from PR) along with some clothes and other stuff. I am getting tired of saying this but the video is in Icelandic, sorryyyy (I need to grow some balls and film a video in english for you lovely people). Hope you are having a wonderful monday!

PS. I have a lot of exciting products coming up on the blog these next weeks x

//Ég tók upp mitt fyrsta "haul" myndband í gær! Ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að setja það inn og spurði á Instagram og þar sögðu allir JÁ! Þannig hér er það, mitt fyrsta (og klárlega ekki síðasta þar sem ég er shopaholic) haul video. Flestar vörurnar eru förðunarvörur (bæði sem ég hef keypt sjálf ásamt nokkru sem ég hef fengið frítt) en ég sýni líka flíkur og fleira. Ég mun fjalla um einhverjar af vörunum sem ég sýni í myndbandinu hér á blogginu en þið megið endilega láta vita ef þið viljið ítarlega færslu um eitthvað. En endilega horfið og eigið frábæran mánudag x

Monday, February 24, 2014

MAKE UP INSPIRATION | SPRING/SUMMER 2014


I feel like spring and summer will be here shortly, the skies are blue again and the sun has started to stay up for more than two hours. I am super excited about summer coming, I won't be doing anything in particular but the warmer weather always gets me in a better mood. As the spring and summer months are coming, I've been looking at at some of the trends for 2014. Natural and dewy skin, orange lips and a pastel eye shadows are some of the trends this year. The orange lips and dewy skin are definite favorites of mine! Are you excited about the summer?

//Mér finnst eins og að sumarið og vorið séu rétt ókomin! Himinn er byrjaður að vera fagurblár á ný og sólin er uppi lengur en tvo klukkutíma. Ég er orðin mjög spennt fyrir sumrinu þó ég sé ekki með nein ákveðin plön, hlýja veðrið kemur mér einfaldlega alltaf í mun betra skap! Nú þegar styttist í hlýju mánuðina hef ég verið að skoða nokkur trend fyrir árið 2014. Náttúruleg og ljómandi húð, appelsínugular varir  og pastel augnskuggar eru nokkur af trendunum þetta árið. Ert þú orðin spennt fyrir sumrinu?



Monday, February 10, 2014

MAKEUP BRUSHES 101 | MUST HAVE EYE BRUSHES


I thought I would do a little MU Brushes 101. Which brushes are my favorites, how I care for them and all of that jazz. I think good quality brushes are essential for creating beautiful make up looks, but brushes don't have to cost a fortune. There are a lot of great brands that offer good quality brushes with affordable price tags. Such as Sigma and Real Techniques. In this post, I will be sharing with you my must have eye shadow and eyebrow brushes and some dupes (if I know of any). Enjoy!

//Ég ætla að gera nokkrar færslur um bursta, svona Förðunarburstar 101. Uppáhalds burstar, hvernig ég sé um þá og ýmislegt annað. Mér finnst góðir burstar vera nauðsynlegir til að gera fallegar farðanir. En burstar þurfa ekki að kosta annan handlegginn og það eru mörg fyritæki sem selja bursta á góðu verði. Til dæmis Sigma og Real Techniques. Í þessari færslu fer ég yfir mína uppáhalds bursta (eins og er, það breytist ansi oft) fyrir augun og augabrúnirnar, ég mun einnig benda ykkur á svipaða bursta á betra verði (ef ég get). Njótið!

MAC 195, MAC 263, SPOOLIE, MAC 239, SIGMA E55, RT BASE SHADOW BRUSH, MAC 217, MAC 219, MAC 210.


Starting it off with my eye liner brush of choice, the MAC 210. It's tiny and makes everything a lot easier. Next, a pencil brush is great for a lot of things, like smudging out eyeliner and doing lower lash line work. This is the MAC 219 but the Sigma E30 is just as good. The holy grail blending brush is the MAC 217. This brush or a brush similar to this one (Sigma E25 is very similar) is the perfect blending brush, it works wonders. Just trust me, I don't know what I would do without this little guy. For applying eye shadow bases and creams, I love my super soft Real Techniqes Base Shadow Brush (comes in the Starter Set). For pressed pigments and such, I like the E55 from Sigma. Lastly, the MAC 239 is my favorite for applying eye shadows to the lid, it packs on the color perfectly (the Sigma E55 is the closest dupe I know of, but it is a lot larger).

//Við byrjum á eye liner burstanum sem mér finnst virka best, MAC 210. Pínkulítill og gerir lífið auðveldara. Næst er það svokallaði "pencil" burstinn, góður í ýmislegt eins og að mýkja eyeliner og æðislegur fyrir augnskugga undir augun. Þessi á myndinni er MAC 219 en Sigma E30 er mjög svipaður. Nú svo er það, uppáhalds burstinn minn, hinn heilagi MAC 217. Þessi fullkomni blöndunarbursti gerir allt svo miklu auðveldara (Sigma E25 er nánast alveg eins). Veit ekki hvar ég væri án hans (ok dramatísk). Treystu mér, hann er algjör draumur og nauðsynlegur í burstasafnið. Fyrir kremskugga og grunni, finnst mér best að nota ofur mjúka Real Techniques Base Shadow Brush (kemur í Starter settinu). Fyrir pressed pigment og slíkt finnst mér E55 frá Sigma vera mjög góður. Síðast en alls ekki síst, er það MAC 239. Uppáhalds í að setja augnskugga á augnlokið. Hann er í fullkomininni stærð og "pakkar" litnum vel á (Sigma E55 er svipaður, en talsvert stærri).


These are the brushes I use most often for my eyebrows. Starting off with the not-so luxurious but necessary spoolie brush. This one I got while I was studying Make Up Artistry, but any spoolie brush works just as well (the spoolie on the Anastasia Brow Wiz is really good). Running a spoolie through the eyebrows both before and after applying any product is a crucial step in my routine. Firstly to comb the hairs in the right place, secondly to spread the product evenly and make everything look more natural. Next up, the MAC 263, this is my favorite brush to apply brow products (right now. I used to use the Sigma E65 and the flat liner brush from BH Cosmetics). It's synthetic so it's great both for powder and creams. Lastly, the MAC 195 (Sigma F75 is pretty much identical). I use it to clean up underneath the eyebrow after I fill them in, it makes them look perfect.

Next time I will be showing you my must have face brushes! Hopefully you found this helpful and if you have any brush recommendations, please let me know in the comments!

//Þetta eru burstarnir sem ég nota oftast fyrir augabrúnirnar mínar. Fyrst er það ótrúlega óspennandi  en afar nauðsynleg greiða. Ég fékk þessa þegar ég lærði í Mood School en hvaða greiða sem er virkar vel (sú sem er á Anastasia Brow Wiz er mjög góð). Ég nota hana bæði fyrir og eftir að ég fylli inn í augabrúnirnar. Fyrst til að greiða hárin í rétta átt og svo til að dreifa betur úr litnum og gera allt náttúrulegra. Næst er það MAC 263, uppáhalds augabrúnaburstinn minn (eins og er, ég notaði einu sinni Sigma E65 og beina burstann frá BH Cosmetics). Hann er úr gervihárum svo hann er góður bæði í púður og krem. Síðast er það MAC 195 (Sigma F75 er nánast alveg eins). Ég nota hann til hreinsa til undir augabrúninni með hyljara eftir að ég fylli inn, það gerir þær fullkomnar.

Næst mun ég tala um mína uppáhalds andlitsbursta. Vonandi fannst ykkur þetta fróðlegt!

PS. As you guys might have noticed, this site is now www.elinlikes.com, hurray! x

PS. Eins og þið tókuð kannski eftir, þá er síðan núna www.elinlikes.com (nýr gjafaleikur bráðlega) Húrra húrra!. (Öll like-in á færslurnar hurfu þegar ég breytti) x 




Friday, February 7, 2014

REVIEW | LIME CRIME VELVETINE IN SUEDEBERRY




I ordered a few goodies from BeautyJoint this last month, mostly necessities like lashes for my kit and a back up of my favorite blush, Heather Silk from Wet N Wild. While I was scrolling through the pages, I saw that they have started selling Lime Crime products. I've always been intrigued by the company, it's totally cruelty free and is also vegan, which is always a plus. I've heard plenty of good things about their beautiful vibrant lipsticks and their super long lasting Velvetines. I happily added one of each to my cart. 

I haven't tried the lipstick yet, but I'll keep you posted on that later on. But holy mama, I think I've found a new favorite lip product. I chose the shade Suedeberry from the Velvetines line. It's a vibrant red with  a bit of orange. The consistency of these so called Velvetines, is very thin and liquid y. It comes with a typical lip gloss applicator, it's very easy to apply and opaque in one swipe! It dries to a very, very matte finish but doesn't dry out your lips (do bare in mind to scrub them a bit before applying). The best thing about these is that it stays on like no other! Kiss proof and you can eat a big juicy meal without looking like the Joker afterwards (I ate a big pizza and the color didn't move). I am so happy I tried this and will definitely be getting the other two shades! I got mine on beautyjoint.com for 20$.

//Ég keypti nokkrar vörur frá BeautyJoint í síðasta mánuði, aðallega nauðsynjar eins og augnhár fyrir kittið og auka stykki af uppáhalds kinnalitnum mínum, Heather Silk frá Wet N Wild. Þegar ég var að skoða síðuna sá ég að þau eru byrjuð að selja Lime Crime. Ég hef alltaf verið heilluð af fyrirtækinu, það er algjörlega cruelty free (ekki testað á dýrum) og vegan! Sem er alltaf plús. Ég hef heyrt svo margt gott af fallegu varalitunum þeirra og Velvetines sem eiga að endast eins og draumur. Ég bætti glaðlega einu af hvoru í körfuna hjá mér.

Ég hef ekki enn prufað varalitinn, ég læt ykkur vita með hann seinna. En drottinn minn dýri, ég held ég hafi fundið nýja uppáhalds vöru. Ég valdi litinn Suedeberry frá Velvetines línunni. Hann er bjartur rauður með smá appelsínugulu. Áferðin á þessum svokölluðu Velvetines er þunn og fljótandi. Kemur með týpiskum gloss bursta, mjög auðvelt að setja á varirnar og þekur vel í fyrstu stroku! Þegar hann þornar verður hann mjög mattur, en þurrkar ekki varirnar (best er samt að skrúbba varirnar aðeins áður). Það besta við hann er að hann endist hrikalega vel! Hæfur í kossa þar sem hann smitast ekki og ég gat borðað heila safaríka máltíð án þess að líta út eins og Jókerinn (fékk mér pizzu og liturinn haggaðist ekki). Ég er svo glöð að hafa loksins splæst í einn og ætla ég klárlega að kaupa hina tvo litina. Ég keypti minn á beautyjoint.com á 20$.


Wednesday, January 29, 2014

REVIEW | AFFORDABLE EBAY BRUSHES








Not too long ago, I subscribed to a pretty British girl on YouTube. Her name is Gabby or Velvet Ghost. She does beauty related videos and she always uses these really affordable (I say affordable because cheap simply sounds so.. cheap) brushes. I thought I'd give them a go, and if I didn't like them, it wouldn't really matter because they are so cheap. The way they are shaped and look, makes me think that they are probably supposed to be dupes for the very popular Sigma X brushes (I only own one of those, the F80 and I love it very dearly).

The Sigma X brushes are extremely dense and buff the foundation perfectly into the skin. If you aren't familiar with the Sigma brushes, the Real Techniques Buffing Brush and Expert Face Brush have a similar purpose, but are a bit smaller than the F80 and not quite as dense. The set I purchased has ten synthetic brushes, five face brushes and five mini versions of the larger ones. When I got them I imminently noticed that they are definitely not as dense as the F80, but they are extremly soft. Two of the larger brushes do come pretty close though, they are more dense then the other brushes in the set (the round top and the pointed one). The smaller brushes are great for packing on eyeshadow but work best to blend out concealer or eyeshadow.

I've only had these brushes for a week and have been playing around with them a bit. I always clean my brushes when I get them and these didn't shed a lot, only a few stray hairs. I definitely recommend these brushes to everyone! Especially beginners that don't want to invest in expensive brushes just yet. The set I chose is only 21$/GBP 13 (the F80 brush costs 21$ on it's own), so these brushes are super cheap and cheerful and the quality is pretty darn good! You can check them out here, I got the 10 piece set in silver.

//Nýlega byrjaði ég að horfa á sæta breska stelpu á YouTube, hún heitir Gabby eða Velvet Ghost. Hún gerir allskyns bjútí myndbönd og notar alltaf ódýra bursta sem hún keypti af eBay. Ég ákvað að skella mér á eitt sett til að prufa, ef að þeir væru ekki góðir þá myndi það ekki skipta miklu þar sem þeir eru svo ódýrir. Miðað við hvernig burstarnir líta út og hvernig þeir eru formaðir, er nokkuð líklegt að þeir eigi að vera ódýrari týpa af hinum sívinsælu Sigma X burstum (ég á aðeins einn þannig, F80 og er hann með mínum uppáhalds).

Sigma X burstarnir eru ótrúlega þéttir og "buffa" farðann fullkomnlega inní húðina. Ef þú kannast ekki við Sigma burstana, Real Techniques Buffing burstinn og Expert Face burstinn svipaðir, nema Real Techniques burstarnir eru ekki jafn þéttir og aðeins minni. Settið sem ég keypti inniheldur tíu bursta, fimm í stærri kantinum og fimm sem eru mini gerðir af þeim stærri. Þegar ég fékk þá í hendurnar tók ég strax eftir því að þeir eru alls ekki jafn þéttir og F80 burstinn, en þeir eru brjálæðislega mjúkir. Tveir af stærri burstunum eru þó þéttari en hinir (rúnaði burstinn og oddmjói) og eru líkari Sigma X burstunum. Litlu burstarnir eru svo góðir í augnskugga. Hinsvegar finnst mér þeir yndislegir í að blanda út hyljara.

Ég hef aðeins átt þessa bursta í viku og hef verið að leika mér aðeins með þá. Ég þríf burstana mína alltaf þegar ég fæ þá og þessir fóru ekki mikið úr hárum, bara nokkur eins og gerist oftast. Ég mæli klárlega með þessum burstum, aðallega fyrir þá sem eru bara að byrja og eru ekki tilbúnir að splæsa í dýra bursta strax. Settið sem ég keytpi kostar aðeins 21$/2400 kr (F80 burstinn kostar 21$ einn og sér), svo þessir burstar eru ódýrir og ansi góðir! Getur skoðað þá hér, ég keypti silfraða 10 bursta settið. 


Friday, January 24, 2014

REVIEW | ANASTASIA CONTOUR KIT




Recently Anastasia Beverly Hills released a contouring palette. I wasn't one of the lucky ones to get it when they first stocked it and it was sold out for quite some time. Then one day on Instagram, Anastasia posted that they would be restocking it the next day at 2, being the crazy lady I am put an alert on my phone so I wouldn't miss it. 2 o'clock hits the next day and I try to log on to the site. But the site had crashed! (I know I wasn't the only insane person refreshing the website every 2 seconds). I thought I had missed it, so I continued with my day. But after running some errands, I checked the website again, and it was there! IN STOCK. Those two words made me so happy and I put in a very exciting order.

The compact palette comes with 3 highlighting shades and 3 contouring shades. The shades are all matte except for Sand which is a shimmery highlighter. You also get a pamphlet where the gorgeous Tamanna Roashan (@dressyourface) shows you how to contour like a pro. I've been playing with this palette and so far I am very pleased. The powders are highly pigmented and blend like a dream. It costs 40$ which may sound like a lot, but it's 6 shades so it's only 6-7$ for a high quality product, which I think is a great price. I think this is an amazing palette, both for beginners or pros! Anastasia might be best known for her brow products, but this palette is making me excited to try out all the new stuff that will be relased in 2014!

//Nýlega gaf Anastasia Beverly Hills út skyggingapallettu. Ég var ekki ein af þeim heppnu sem náðu að kaupa hana þegar hún var nýkomin út og hún var uppseld í svolítinn tíma. En einn daginn á Instagram lét Anastasia vita að hún kæmi aftur kl.2 næsta dag. Eins og klikkaða manneskjan sem ég er, setti ég það í símann minn og lét hann hringja svo ég myndi nú alveg örugglega ekki missa af þessu! Daginn eftir þegar klukkan sló 2 og ég var komin við tölvuskjáinn (reiðubúin með kortið) og síðan hafði hrunið! (ég veit að ég var ekki ein með það að ýta á refresh takkann á 2 sek fresti). Ég hélt ég hefði misst af henni og hélt áfram með daginn. En um kvöldið athugaði ég aftur til öryggis og var heldur betur glöð þegar það stóð IN STOCK!

Þessi palletta inniheldur 3 púður til að highlighta og 3 til að skyggja. Allir litirnir eru mattir nema Sand highlighterinn en hann er glimmeraður. Þú færð líka lítinn bækling þar sem hin gullfallega Tamanna Roashan (@dressyourface) sýnir þér hvernig skal skyggja eins og pro! Ég hef verið að prufa pallettuna í smá tíma og er mjög ánægð. Púðrin eru mjög pigmentuð og blandast auðveldlega. Hún kostar 40$ sem eru 6-7$ fyrir hvert púður, sem mér finnst sleppa nokkuð vel! (Sending til Íslands kostaði 18$). Mér finnst þessi palletta æðisleg hvort sem þú sért byrjandi eða fagmaður. Anastasia er kannski best þekkt fyrir augabrúnirna vörurnar en þessi palletta gerir mig mjög spennt að prufa allt það nýja sem á að koma út á þessu ári!



Wednesday, January 22, 2014

REVIEW | LAURA MERCIER MINERAL POWDER

Full face of make up using the Laura Mercier Mineral Powder in Real Sand 

Bare faced vs Laura Mercier Mineral Powder

I have said in previous posts, that I am not a big on powders, I like a dewy finish on my skin. Give me that Jlo glow, all year long please. But as usual, YouTubers and bloggers (Chelsea Wears and Essie Button are mostly to blame) have convinced me that I need to give a product a try, this time the Laura Mercier Mineral Powder made its way into my shopping bag. 

This powder promises to "perfect the look of skin" and to give the skin a "visibly smoothed with a luminous, youthful finish". And damn it, they've got it right. I use my Real Techniques Buffing Brush, tap some powder into the lid and roll my brush in it, then I buff it into my skin with circular motions. The foundation leaves you with a light to medium coverage and has a natural glow. It doesn't cover too much, but it evens out the skin tone and doesn't feel heavy on the skin. You could also use this to set your liquid or cream foundation if you want more coverage. I really like this for an everyday foundation, it contains SPF 15, is oil free and should work for most skin types. The only complaint for me is that it's not super long lasting, but it does last a good 4-5 hours without getting too shiny. Just keep a blotting paper on hand and you should be fine. 

//Ég hef sagt í fyrri færslum að ég er ekki mikill púður aðdáandi, ég vil hafa gljáa í húðinni. J-Lo glow allan ársins hring, takk fyrir pent. En eins og vanalega, þá hafa YouTubers og bloggarar  fengið mig til að kaupa nýja vöru, í þetta skiptið náði Laura Mercier Mineral púðrið að koma sér vel fyrir í innkaupapokanum mínum (Chelsea Wears og Essie Button eiga sökina af þessum kaupum)

Púðrið lofar að "fullkomna útlit húðarinnar" og að gera áferð húðarinnar "silkimjúka, ljómandi og unglega". Fjandinn hafi það, Laura Mercier lýgur ekki. Ég nota Real Techniques Buffing burstann, hristi smá af púðrinu í lokið og rúlla burstanum ofan í, síðan nudda ég því inní húðina með hringlaga hreifingum. Púðrið gefur manni létta til miðlungs þekju og hefur náttúrulegan ljóma. Það hylur ekki of mikið en jafnar út húðlitinn. Það er mjög létt á húðinni og getur einnig verið notað til að "setja" fljótandi/krem farða ef þú villt meiri þekju. Mér finnst þetta púður æðislegt fyrir hversdags notkun, það er með SPF 15 (sólavörn), er olíu laust og ætti að virka fyrir flestar húðtýpur. Eini gallinn er að það helst ekki á of lengi en er fínt í 4-5 klukkutíma án þess að verða of glansandi. Hafðu bara blotting pappír með og þú ættir að vera í góðu!


Monday, January 20, 2014

WISHLIST | NARS NARSISSIST


On the 15th of January (in stores February 1st), NARS released a beautiful eye shadow palette on their website. It's a limited edition, spring gifting of 2014. The stunning palette is called Narsissist and was the name inspired by the brands devoted fans. The palette includes 15 eyeshadows, most shades are neutral, like beautiful browns, bronzes and pinks. It costs 79$, which may sound extremely high for a palette, but considering that one NARS eyeshadow is 24$ and a eyeshadow duo is 34$, the price is fair and you get your moneys worth. I am in love with this amazing palette and I might allow myself a little splurge next month, we'll see. 

//Síðastliðinn 15. janúar (kemur í búðir 1. Febrúar) gaf Nars út æðislega augnskugga pallettu á síðunni sinni. Hún er limited edition, vor gjöf fyrir árið 2014. Þessi gullfallega palletta er kölluð NARSissist og fékk nafnið útaf öllum traustu aðdáendum merkisins. Pallettan inniheldur 15 augnskugga. Flestir litirnir eru nokkuð hlutlausir, t.d. fallegir brúnir, bronsaðir og bleikir. Hún kostar 79 dollara, sem hljómar kannski brjálæðislega hátt, en er sanngjartn þar sem einn NARS augnskuggi kostar 24$ og augnskugga dúó kostar 34$. Ég er allavega alveg yfir mig hrifin af þessari pallettu og ég leyfi mér jafnvel að næla mér í hana í næsta mánuði. 


NARS will also release a Sephora exlucive on February 1st, a NARSissist Cheek Palette. For 49$ you get Devotee (a higlighter), Orgasm, Laguna and a brush. This palette doesn't tickle my fancies as much, since I already have Orgasm and Laguna both in a palette and in single form. I also own the Devotee in my NARS Guy Bourdin palette (shown here). It is a beauty and I would like the brush, but I'll let this one slide.

//NARS mun einnig gefa út NARSissist kinnalita pallettu 1. Febrúar í Sephora. Fyrir 49$ færðu Devotee (highlighter), Orgasm, Laguna og bursta. Þessi palletta heillar mig ekki jafn mikið, þar sem ég á bæði Orgasm og Laguna í annari pallettu og líka staka. Devotee highlighterinn á ég líka í NARS Guy Bourdin pallettunni sem ég sýndi hér. Hún er falleg og ég væri til í burstann, en ég sleppi þessari. 



Monday, January 13, 2014

FOTD | MAKE UP GEEK UTOPIA PIGMENT


EYES: MAC Fluidline in Dipdown (eyebrows), MAC Uninterupted e/s, MAC Texture e/s,  MAC A Little Folie e/s, Make Up Geek Utopia pigment, Lorac Pro Palette Expresso and Black, NYC Liquid Liner, MAC Vanilla Pigment, MAC Smolder.
FACE: Make Up Forever HD Foundation, MAC Pro Longwear Concealer, Bare Minerals Well Rested, Hourglass Ambient Lighting Powder in Diffused Light, Nars Laguna, Nars Mistinguette Blush, Nars Devotee.
LIPS: Jordana Easy Liner For Lips in Tawny, MAC Hue.

Last Saturday my friend was throwing a small birthday party for the girlfriends. I opted for a smokey glittery look (very similar to what I had on new years eve). As always, the pictures are terrible (sorry, I am still working on getting better lighting). On the lid I used the oh so stunning Utopia pigment from Make Up Geek and the pictures are simply not doing it justice, in real life it was suuuper shimmery, glittery and gorgeous. As you can see by the long list of products used, I go a bit crazy when going out and use a lot of different products.

//Síðasta laugardag hélt vinkona mín uppá tvítugsafmælið sitt og bauð stelpunum í smá partý. Ég ákvað að vera með glimmer smokey í tilefni kvöldsins (svipað því sem ég var með á gamlárs). Eins og alltaf eru myndirnar hræðilegar (afsakið en ég er enn að vinna í að fá betri lýsingu). Á augnlokinu notaði ég hið ó svo fallega pigment frá Make Up Geek sem heitir Utopia (talaði um það hér). Myndirnar eru ekki að koma því til skila, en í alvöru var það mega glimerað og gullfallegt. Eins og þú sérð af þessum langa lista yfir þær vörur sem voru notaðar, þá verð ég alltaf smá klikk þegar ég er að gera mig til fyrir djamm.





Friday, January 10, 2014

WORTH THE HYPE? | MAC FACE AND BODY

Bare face, sorry didn't mean to scare you //Ómáluð, afsakaðu ef ég hræddi þig

With MAC Face and Body //Með MAC Face and Body farðann

With a full face of make up //Fullmáluð
MAC Face and Body, Bare Minerals Well Rested, Hourglass Ambient Lighting Powder in Diffused Light, Nars Laguna, Wet N Wild Heather Silk, Nars Devotee, Anastasia Brow Wiz in Medium, Black from Lorac Pro Palette, Maybelline Big Eyes mascara, MAC Hue. 

I am pretty sure that most people interested in make up or beauty have heard of the MAC Face and Body foundation. I've wanted it for a very long time, but never gave in to buy it, until I was in New York. I've been trying it out since I came back and I am very pleased. The very, very talked about foundation is a light to medium coverage, very light on the skin and stays on for hours! I would say it's a great everyday foundation (it doesn't contain SPF, so I recommend wearing one underneath for everyday use). It is very liquidy, blends easily and sets pretty quickly. You seriously can not feel it on your skin (at least I dont). It is pretty dewy, so it needs to be set with a powder, at least on the t-zone. I got mine in N2 which is a perfect mach for my skin. I say that you should totally give this one a go if you are on the look out for a light foundation!

//Ég er nokkuð viss um að allir bjúti/förðunar áhugamenn hafi heyrt um MAC Face and Body farðann. Mig hefur langað í hann í langan tíma og gerði það loksins úti í New York. Ég hef verið að prufa hann síðan ég kom heim og ég er mjög sátt. Þessi umtalaði farði er með litla til miðlungs þekju, mjög léttur á húðinni og helst á í marga klukkutíma! Ég myndi segja að hann sé frábær fyrir hversdags notkun (það er ekki sólarvörn í honum, svo ég mæli með að nota sólarvörn undir fyrir hversdags). Farðinn er mjög blautur, blandast auðveldlega í húðina og "sest" nokkuð fljótlega. Þú finnur ekki fyrir honum á húðinni (allavega ekki ég)! Farðinn er vel ljómandi, svo ég mæli með að nota smá púður yfir, allavega á t-svæðinu. Minn er í N2 og passar fullkomnlega. Ég mæli klárlega með þessum farða ef þú ert að leita að einum léttum og góðum!



Wednesday, January 8, 2014

REVIEW | MAC CYBER



Vampy lip on a wednesday. Cyber is a gorgeous lipstick from MAC. It is a very dark, reddish purple. It's a amplified finish so it doesn't feel uncomfortable on the lips and has a sheen.  It stays on the lips fairly well and leaves a stain when removed. If you are looking for a great vampy lip, you should check this one out. 

//Dökkar varir á miðvikudegi. Cyber er æðislegur varalitur frá MAC. Hann er mjög dökkur, rauðleitur fjólublár. Hann er "amplified" (mismunandi áferðir frá MAC), svo hann er þægilegur á vörunum og er ekki mattur. Hann helst ágætlega á vörunum og skilur eftir sig lit þegar þú tekur hann af. Ef þú ert að leita að fallegum dökkum varalit ættiru að skoða þennan!




Friday, January 3, 2014

WHAT'S ON MY EBAY WATCH LIST | 1


Here are some of the items that have made it on to my watch list on eBay. I am a big fan of eBay, I think it's a great place to get stuff for affordable prices, especially clothes. They may not be the best quality but when it comes to trendy pieces, you probably won't be wearing them forever. I am not as keen on buying beauty products from eBay, unless I've really looked into the seller. Do you shop a lot on eBay?

//Hér eru nokkrir hlutir sem eru komnir á Watch List-ann minn á eBay. Ég elska eBay, mér finnst það frábær síða til að kaupa hluti á ásættanlegum verðum. Kannski ekki bestu gæðin en þegar kemur að trendum þurfa flíkurnar svosem ekki að endast að eilífu. Ég er hinsvegar ekki jafn hrifin af því að kaupa snyrtivörur á eBay, nema ég hafi rannsakað seljandann vel. Hefur þú verslað mikið á eBay?


Wednesday, January 1, 2014

I'VE GOT A GOOD FEELING ABOUT THIS ONE | 2014

New Years in 2012/2013 - Me, Máni (my godson) and my boyfriend, Heiðar
Gamlárskvöld 2012/2013 - Ég, Máni (guðsonur minn) og Heiðar kærastinn minn



Happy new year everyone x
Hope you had a great new years celebration! I had a relaxed cosy evening with my loved ones. My boyfriend and I ate at his parents house and afterwards we went to my parents house and I had a few drinks with my mum. We lit up some fireworks and played cards, we had a lovely evening. No crazy parties this time and it felt so amazingly good to wake up on the new year feeling fresh! I've got a good feeling about this year, I don't know what it is, but I think it's going to be a good one.

Last year I wrote down a little list on my notebook, my new years resolutions for 2013. Last week I read over the list and was happily surprised when I realized that I had actually managed to cross off everything but two things. The two things that I couldn't do in 2013, I will add onto my 2014 list. Hopefully I'll be able to do them this year. I have already written down a list for 2014, here are some of the things I want to do.

Get in better shape - the very classic resolution that most people have on their minds
Eat better food - as a vegetarian/pesciterian, I want to try out more vegetarian recipes and get all the nutrients I need
Get another tattoo - this one was on my list last year, I had an appointment in November but I decided to let postpone it because I needed to save up some money
Better make up storage - now this might sound weird, but as a make up artist I want everything to look nice and clean
Save money - save not spend this year, good luck with that
Become more flexible - another weird one, you have to set yourself some goals!
Keep on blogging - I would say that I am doing quite good so far and I don't want to get lazy and quit like I did last time! 

I think doing a resolutions list is a great way to get yourself pumped and excited about the new year. I would love to hear if you have any resolutions of your own! 

//Gleðilegt nýtt ár allir x
Vonandi áttuð þið yndislegt gamlárskvöld! Ég var í kósý með fjölskyldunni. Ég og kærastinn borðuðum gómsætan kvöldmat hjá foreldrum hans og eftirá fórum við til foreldra minna. Við mútta fengum okkur nokkra drykki, horfðum öll saman á skaupið, sprengdum og spiluðum! Engin klikkuð partý þetta skiptið en það var líka alveg ótrúlega gott að vakna hress og ferskur á nýja árinu. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu ári og held ég að það verði hrikalega gott! 

Á síðasta ári skrifaði ég niður smávegis lista, áramótaheit fyrir 2013. Í síðustu viku fór ég yfir listann og var ég mjög ánægð að sjá að ég gat sett x við langflest! Aðeins tveir hlutir voru eftir en þeir færast yfir á 2014 listann. Vonandi næ ég að gera þá á þessu nýja fína ári. Hér er hluti af listanum sem ég hef gert fyrir 2014. 

Komast í betra form - klassískt 
Borða betri mat - sem grænmetisæta/pesciterian langar mig að prufa fleiri uppskriftir og passa uppá að ég sé að fá öll næringarefnin sem ég þarf
Fá mér annað tattoo - eitt af því sem var á listanum frá því í fyrra, var komin með tíma í nóvember en þurfti að fresta því til að geta sparað aðeins fyrir NY
Koma upp almennilegri förðunaraðstöðu - kannski smá skrítið, en sem förðunarfræðingur vil ég hafa allt fínt og hreint á sínum stað
Spara - reyna að spara meira en ég eyði, gangi mér vel
Verða liðugri - annað skrítið! Kemst í splitt en langar að komast í spígat!
Halda áfram að blogga - mér gengur svo vel hingað til! vil ekki verða löt og hætta eins og síðast!

Það að skrifa niður smávegis lista yfir áramótaheitum finnst mér sniðugt til að verða spenntur fyrir nýja árinu!  Endilega segðu mér hvað er á listanum þínum!



PS. My sister has created a beautiful calendar for 2014 which you can get for free on her blog, right here x
PS. Systir mín bjó til fallegt dagatal fyrir 2014 sem þú getur fengið frítt hérna x

Monday, December 23, 2013

BEST OF BEAUTY | 2013



My most used and loved beauty products through 2013. I saw this tag going around on YouTube and I thought I would make it into a blog post. Here are my most used products of 2013! What are yours? //Mínar mest notuðu og elskuðu vörur í gegnum árið 2013. Sá þetta 'tag' ganga um á YouTube og ákvað að búa til blogg færslu í sama stíl. Hér eru mínar mest notuðu vörur árið 2013! Hverjar eru þínar?

Best of beauty 2013

Primer - MAC Strobe Cream
A must have in my collection, gives the skin a beautiful glow. //Algjört must have í mínu safni! Gefur húðinni fallegan gljáa.

Foundation - Bourjois Healthy Mix (old formula) and Revlon Colorstay Whipped
Both great drugstore foundations, the Healthy Mix is great for everyday and gives you a beautiful dewy look, the Revlon one stays on for hours and has very good coverage. //Báðir æðislegir farðar á góðu verði. Healthy Mix er frábær fyrir hversdags, hylur vel en er fallegur og náttúrulegur á húðinni. Sá sem er frá Revlon endist á í marga klukkutíma og hylur frábærlega!

Concealer - Bare Minerals Well Rested and Graftobian HD Glamour Palette
I use my Graftobian Palette to conceal blemishes and sometimes under my eyes, very creamy and stays on well. Well Rested is a great powder concealer, but I love it for setting my concealer and brightening up under the eyes. //Ég nota Graftobian pallettuna til að fela bólur og bletti, stundum undir augun. Mjög góður og kremaður. Well Rested er æðislegur púður hyljari, ég nota hann hinsvegar aðallega yfir krem hyljara og birta til undir augunum. 

Powder - MAC Studio Fix
I use Studio Fix to set my liquid foundations if I feel I need a bit more coverage, also good for days when you don't want to wear a lot of make up. Great for girls with oily skin! //Ég nota Studio Fix púðrið yfir meikið ef ég vil meiri þekju, líka mjög gott fyrir daga þar sem ég vil ekki vera mikið máluð. Frábært fyrir stelpur með feita húð!

Bronzer - Nars Laguna and MAC Matte Bronze
Everyone knows Laguna, it's a great natural shade with a hint of shimmer. Great for both contouring and bronzing up the skin, same goes for MACs Matte Bronze. //Allir vita að Laguna er frábær náttúrulegur litur með smá glimmeri. Góður bæði í að skyggja og líka til að gefa húðinni smá lit, sama á við um MAC Matte Bronze.

Blush - Wet N Wild Heather Silk
Favorite blush of all time. A very pigmented and gorgeous matte berry pink. Goes with every look. //Minn uppáhalds kinnalitur sem ég hef prufað. Mjög pigmentaður og fallegur mattur bleikur. Fer vel með öllum lúkkum. 

Highlighter - theBalm Mary Lou-Manizer
A beautiful shimmery champagne shade. This isn't one to go for if you want a subtle highlight. //Ótrúlega fallegur glitrandi kampavíns litur (ekki með glimmeri). Ekki fyrir þá sem vilja lúmskt highlight.

Brow - Anastasia Brow Wiz Medium Ash
Best brow pencil I've used. Great shade and the pencil is so tiny that it's so easy to make your eyebrows perfect. The spoolie is also amazing! //Besti augabrúnablýantur sem ég hef notað. Liturinn er æðislegur og blýanturinn er mjór og lítill svo það er auðvelt að gera fullkomnar augabrúnir. Greiðan er líka æðisleg!

Eye Shadow Palette - Lorac Pro Palette
My most used palette for sure. I love all of the shades and I love that it has many matte shades because I tend to use them more. My Naked palettes have barely been used since I got this one.  //Uppáhalds pallettan mín. Æðislegir litir og ég elska að það eru margir mattir litir, því ég nota þá meira. Naked palletturnar mínar hafa varla verið notaðar eftir að ég fékk þessa.

Eye Liner - MAC Blacktrack Fluidline and Rimmel Scandaleyes Nude
I use my fluidline to create the perfect cat eye and to tight line,  don't have any complains. I love Rimmels Nude eyeliner for the waterline to brighten up the eyes. //Ég nota fluidline til að gera fullkomið 'cat eye' og til að tightline-a í vatnslínunni, hef engar kvartanir. Ég elska Nude eyeliner frá Rimmel til að setja í vatnslínuna og birta augun.

Mascara -  L'oreal Telescopic
Great for giving your lashes a lot of length, which I need. I like the original one and the new one just as much. //Frábær til að lengja augnhárin, sem ég þarf á að halda. Finnst nýji og gamli vera alveg jafn góðir!


Lipstick - MAC Peach Blossom and MAC Girl About Town
Peach Blossom is great for everyday, my favorite 'my lips but better' lipstick. Girl About Town I used a lot this summer, a great vibrant fuschia pink. //Peach Blossom er frábær hversdags varalitur, minn uppáhalds 'my lips but better'. Girl About Town var mikið notaður í sumar og er fallegur bjartur fjólubleikur.


Merry christmas everyone! I'll have a new post on Wednesday x
Gleðileg jól allir saman! Ný færlsa kemur inná miðvikudaginn, eigið góð jól x

Blogger Template designed By The Sunday Studio.