Showing posts with label elin likes. Show all posts
Showing posts with label elin likes. Show all posts

Tuesday, June 30, 2015

REVIEW • LA GIRL BEAUTY BRICK BLUSH PALETTE



FOTD USING THE LIGHTER BLUSH, BRONZER AND HIGHLIGHT 


I've started so many blog posts off by saying "I love good and affordable make up" and that's exactly how this post should start. LA Girl recently brought out four face palettes, that include two blushes, a bronzer and a highlight. I was gifted the Glow* palette from Fotia.is (an Icelandic online store) and I must say, I really like it.

The packaging is slim and simple, with a magnetic closure (not the best magnet but it works). Inside there are two very pretty blushes, a pinky coral and a peachy pink with shimmers. Also, there is a light bronzer and a white highlighter with a golden sheen (think Nars Albatross).  I'd say this palette would work best on fair-medium skintones. The powders aren't the softest or buttery-est (yep) but they are well pigmented, blend easily and look beautiful on the skin. 

My favorites in the palette are the blushes, they are just gorgeous and for $9 a palette (1990 ISK on Fotia.is) - these get two thumbs up from me! I also really like the look of Spice, might have to pick that up ASAP x

//Ég hef oft byrjað færslurnar mínar á því að segja "ég elska góðar og ódýrar förðunarvörur" og þannig ætti þessi færsla að byrja. LA Girl gaf nýlega út fjórar andlitspallettur, sem innihalda tvo kinnaliti, sólarpúður og highlighter. Ég fékk Glow* pallettuna frá Fotia.is og mér finnst hún frábær.

Pakkningarnar eru nokkuð einfaldar með segul lokun (sem er kannski ekki sá sterkasti, en hann virkar). Inni í pallettunni eru síðan tveir fallegir kinnalitir, bleikur kóral litur og ferskjubleikur með glans ásamt ljósu sólarpúðri og hvítum highlighter sem gefur gylltan glans (mjög svipaður Nars Albatross). Þessi palletta myndi best henta þeim sem eru með ljósa-miðlungs húðlit. Púðrin eru ekki þau mjúkustu en þau eru vel pigmentuð, blandast auðveldlega og eru mjög falleg á húðinni.

Uppáhöldin mín í pallettunni eru klárlega kinnalitirnir, þeir eru æðislegir. Palletturnar kostar 1990 krónur og fást inn á fotia.is - þær fá tvo þumla upp frá mér! x

post signature

Tuesday, June 16, 2015

REVIEW • ESTEÉ LAUDER DOUBLE WEAR FOUNDATION


BARE FACE VS ESTEÉ LAUDER DOUBLE WEAR FOUNDATION

FULL FACE OF MAKE UP USING DOUBLE WEAR FOUNDATION

Hello there ladies and gents! I have for you today a review on a cult favorite, the Double Wear foundation from Esteé Lauder. The Double Wear foundation has been on my wishlist for years and I finally picked it up when Sephora was having their lovely VIB sale - hurray for 15% off.  "Matte" and "full coverage" isn't usually my thing but I was feeling adventurous and wanted to try something a bit different.. and you know what? I'm kinda glad I did.

The formula is quite thick but not so much that it's a pain to blend out. I like to use my Beauty Blender to apply it and I do half of my face at a time as it dries pretty quickly. Make sure to blend everything out evenly because once it sets, it's on there and it can be quite difficult to fix splotchy areas. It covers really well (it even covered that terrible blemish I had on my cheek) and has a matte finish. A little goes a long way so don't pile on too much because it will get cakey (PS. It doesn't have a pump, so be careful).

I don't feel the need to powder (I've got combo skin and usually only powder my t-zone and under the eyes) and it seriously lasts ALL DAY. I actually prefer the way it looks at the end of the day because then it isn't quite as matte. I have the shade 1N1 which (I think) is the lightest yellow shade, it's not the perfect match but I can make it work (the shade range is huge so everyone should be able to find a decent match). Also, it hasn't broken me out - yay!

If you are looking for a long wearing foundation (and don't mind a bit of matte-ness), you should definitely go and get a sample! If you've got dry skin this won't work but normal-oily should be fine. Have you tried the Double Wear foundation? Do I need the Double Wear Light as well?

//Halló dömur og herrar! Í dag ætla ég að spjalla um uppáhald margra, Double Wear farðann frá Esteé Lauder. Double Wear farðinn hefur verið á óskalistanum í mörg ár en ég ákvað loksins að splæsa þegar Sephora var með VIB afsláttinn - húrra fyrir 15% af. "Matt" og "full coverage" er ekki vanalega fyrir mig en mig langaði að prófa eitthvað nýtt og viti menn, ég er glöð að ég gerði það!

Formúlan er frekar þykk en ekki svo að það sé hræðilegt að blanda henni. Ég nota Beauty Blender-inn í verkið og geri hálft andlitið í einu því farðinn þornar nokkuð fljótt. Maður þarf að passa að blanda rosa vel því þegar farðinn þornar er erfitt að laga ef eitthvað varð flekkótt. Double Wear þekur rosalega vel (náði meira að segja að fela hræðilegu bóluna sem ég var með á myndinni) og hefur matta áferð. Það þarf ekki að nota mikið í einu, svo farið varlega því farðinn verður auðveldlega "cakey" (og það er engin pumpa!).

Ég nota ekki púður til að setja farðann (ég er með blandaða húð og set vanalega púður undir augun og á t-svæðið) og hann endist ALLAN DAGINN, án gríns. Mér finnst farðinn líta betur út í enda dagsins, þá er hann ekki alveg jafn mattur. Ég á litinn 1N1 sem er ljósasti guli liturinn (að ég held), hann passar ekki fullkomnlega en ég næ að láta hann virka (litaúrvalið er risastórt svo flestir ættu að finna ágætis match). Farðinn hefur ekki gefið mér bólur svo það er extra plús!

Ef þú hefur verið í leit að farða sem endist allan daginn þá mæli ég með því að prófa! Ef þú ert með þurra húð þá gengur hann ekki en venjuleg-olíumikil húð ætti að vera í góðu. Hefur þú prófað Double Wear farðann? Ætti ég líka að prófa Double Wear Light?

post signature

Monday, April 27, 2015

MY NEW RED LOVE • CHANEL ROUGE COCO - ARTHUR



CHANEL ROUGE COCO - ARTHUR

There's something about beautiful lipsticks, a beautiful red lipstick might actually be the classiest thing there is and I recently found a new red that I've fallen for. Don't get me wrong, I am in no way, shape or form saying goodbye to my fav Russian Red but this little guy is making me very happy and I've actually been wearing it quite a lot, it's one of the new Rouge Coco shades from Chanel and it's called Arthur

Arthur is a warm orangy red, a very pretty warm orangy red. It goes on opaque in one swipe and it has a nice glossy finish, not so glossy that I feel like it's going to slip and slide all over my face but just the right amount of glossy. The color stays on my lips very well BUT it bleeds, quite a lot actually. So a lipliner, lip primer or an anti-feathering liner is necessary with this. Arthur is very comfortable on the lips an gives them a tiny bit of moisture through out the day. 

Arthur gets two thumbs up from me; it's a gorgeous shade that makes me feel pretty and classy - what more do you want from a lipstick?

Fun fact : all of the Rouge Coco lipsticks get their name from someone in Coco's life and they are devided into five groups; muses, lovers, family, best friends and artists. Arthur is a red, so he was one of her lovers.

//Það er bara eitthvað við fallega varaliti, fallegur rauður varalitur er eitt það klassískasta sem ég veit og ég fann nýlega einn rauðan sem ég hef fallið fyrir. Ekki misskilja mig, Russian Red er enn mitt uppáhald en ég hef verið að nota þennan helling og hann er að gera mig mjög hamingjusama. Ég er að tala um lit úr Rouge Coco línu Chanel sem kallast Arthur.

Arthur er hlýr appelsínu rauður, mjög fallegur hlýr appelsínu rauður. Hann þekur vel í  fyrstu umferð og er með fallega glossy áferð, ekki svo glossaður að ég sé hrædd um að hann smitist út um allt andlit heldur bara ákkurat nógu mikill/lítill gloss. Liturinn helst ótrúlega vel á vörunum EN hann blæðir í línur, nokkuð mikið. Svo það er nauðsynlegt að nota varablýant, vara primer eða anti-feathering blýant með þessum varalit. Arthur er mjög þægilegur á vörunum og gefur smávegis raka í gegnum daginn.

Arthur fær tvo þumla upp frá mér; liturinn er gullfallegur og mér finnst ég sæt og classy þegar ég nota hann - þarf maður eitthvað meira úr varalit?

Skemmtileg staðreynd : allir Rouge Coco varalitirnir draga nafn sitt frá manneskjum í lífi Coco og er þeim skipt upp í fimm hópa; fjölskyldan, listagyðjurnar, vinirnir, elskuhugarnir og listavinirnir. Arthur er rauður svo hann var einn af elskhugum Coco.


Thursday, April 16, 2015

SEPHORA WISH LIST


1. NARS Dual Intensity Blush - Frenzy 2. Kat Von D - Shade and Light Palette 3. Laura Mercier - Secret Brightening Powder 4. Kevyn Aucoin - Sculpting Powder 5. Cover FX - Custom Cover Drops 6. Becca Shimmering Skin Perfecter - Opal 7. Smashbox - Photo Finish Primer Water 8. Kate Somerville - Goat Milk Cream 9. Kat Von D Everlasting Liquid Lipstick - A-Go-Go 10. Sephora Cream Lip Stain - Always Red

I know I am not the only one that has been filling up their shopping cart on the Sephora website, it's now time for us VIB-ers (and VIB Rouge) to get 15% off. I'll admit, I am always on the Sephora website, checking what's new, adding stuff to my never ending cart and dreaming of all the make up in the world but Sephora doesn't ship to Iceland, so making an order from there can be a hassle but my friend is going to NY in a few days so I'll have it sent to her, I simply cant say no to 15% off! Sadly, I wont be buying all the trillion items in my cart (can I please win the lottery?) but I will be purchasing a few things that I feel I "need" in my collection.

The things I know I am getting for sure? The Secret Brightening Powder from Laura Mercier (and the Translucent setting powder, because I want both), it's been on my wish list for ages and everyone seems to love it so I think it's time to bite the bullet. Another item that everyone loves but I don't have is the Shimmering Skin Perfector from Becca. I do own Moonstone in the Pressed version but I have a feeling that the liquid one in Opal will make me extra happy. Other than that I am not really sure what I'll pick up, I guess we'll just have to wait and see! What's on your Sephora wish list?

//Ég veit að ég er ekki sú eina sem er stanslaust að perrast á Sephora og fylla innkaupakörfuna mína af girnilegum vörum. VIB afslátturinn er í gangi núna og ætla ég að leyfa mér smávegis splæs þökk sé 15% afsláttarkóðanum. Sephora sendir ekki til Íslands en vinkona mín er á leið til NY eftir nokkra daga svo hún ætlar að redda þessu fyrir mig (annars er Verslaðu í USA snillingur!). Ég mun ekki geta splæst í allt sem er í körfunni minni, enda er hún orðin rosaleg, en ég ætla að versla mér nokkrar vörur sem finnst "vanta" í safnið mitt.

Þær vörur sem ég ætla 100% að kaupa? Secret Brightening púðrið frá Laura Mercier (ásamt Translucent Setting púðrinu, því ég þarf bæði) hefur verið á óskalistanum mínum í mörg ár en það er uppáhald allra svo ég held að það sé komin tími til að prófa. Önnur vara sem öllum virðist líka vel við er Shimmering Skin Perfector frá Becca, ég á nú þegar Moonstone í Pressed útgáfunni en mér finnst Opal í blautu formi vera extra fínn. Aðrar vörur en þessar er ég ekki viss með, það mun eitthvað skemmtilegt bætast við. Hvað er á þínum Sephora óskalista?


Thursday, March 5, 2015

VIDEO | GRWM CLASSIC WITH A POP OF COLOR





I am on a video roll you guys! I present to you the second video of the week - my first non-talking GRWM video where I do a classic look with a pop of color. Since this is a sped up video there's no babbling in Icelandic so my readers from all over the globe can watch it without having to press the mute button. I hope you guys like it! Feel free to subscribe (videos in english are coming shortly), like and comment x

SKIN Lancome Miracle Cushion - 01 Porcelaine* (review), Clarins Instant Concealer - 01*, Hourglass Ambient Lighting Powder - Diffused Light, Sleek Higlighter Palette*, Hourglass Ambient Lighting Powder - Incandescent Light, Milani Baked Blush - Luminoso EYEBROWS Anastasia Beverly Hills Brow Wiz - Medium Brown, Anastasia Beverly Hills Clear Brow Gel EYES Yves Saint Laurent Couture Variation - Nu*, Kat Von D Tattoo Liner - Trooper (not a fan!), NYX Jumpo Eye Pencil - Milk, Make Up Store Eye Dust - Sea Weed*, Make Up Store Microshadow - Atoll*, Yves Saint Laurent Mascara Volume Effect Faux Cils*, Tanya Burr - Everyday Flutter* LIPS MAC Lipliner Subculture, MAC Kinda Sexy, MAC Tinted Lipglass - Pink Lemonade

//Ég er í vídjó ham! Hér er annað video vikunnar - mitt fyrsta GRWM myndband þar sem ég tala ekkert heldur sýni hreinlega hvað ég er að gera í hraðspólun með (ágætri) tónlist undir. Núna geta loksins erlendur lesendur mínir horft á myndband frá mér án þess að ýta strax á mute takkann. Vonandi líkar ykkur! Þið megið endilega subscribe-a, like-a og kommenta x 

HÚÐ Lancome Miracle Cushion - 01 Porcelaine* (review), Clarins Instant Concealer - 01*, Hourglass Ambient Lighting Powder - Diffused Light, Sleek Higlighter Palette*, Hourglass Ambient Lighting Powder - Incandescent Light, Nars - Laguna, Milani Baked Blush - Luminoso AUGABRÚNIR Anastasia Beverly Hills Brow Wiz - Medium Brown, Anastasia Beverly Hills Clear Brow Gel AUGU Yves Saint Laurent Couture Variation - Nu*, Kat Von D Tattoo Liner - Trooper (not a fan!), NYX Jumpo Eye Pencil - Milk, Make Up Store Eye Dust - Sea Weed*, Make Up Store Microshadow - Atoll*, Yves Saint Laurent Mascara Volume Effect Faux Cils*, Tanya Burr - Everyday Flutter* VARIR MAC Lipliner Subculture, MAC Kinda Sexy, MAC Tinted Lipglass - Pink Lemonade

Monday, March 2, 2015

VIDEO | COLLECTIVE HAUL - MAKE UP, CLOTHES AND OTHER STUFF



Yesterday I filmed my first haul video, I was a bit worried that no one would want to see it so I asked on instagram and everyone said YES! So here it is, my first (and definitely not last, 'cause you guys know I like shopping) haul video. It's mostly make up (that I bought myself and some stuff I recently got from PR) along with some clothes and other stuff. I am getting tired of saying this but the video is in Icelandic, sorryyyy (I need to grow some balls and film a video in english for you lovely people). Hope you are having a wonderful monday!

PS. I have a lot of exciting products coming up on the blog these next weeks x

//Ég tók upp mitt fyrsta "haul" myndband í gær! Ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að setja það inn og spurði á Instagram og þar sögðu allir JÁ! Þannig hér er það, mitt fyrsta (og klárlega ekki síðasta þar sem ég er shopaholic) haul video. Flestar vörurnar eru förðunarvörur (bæði sem ég hef keypt sjálf ásamt nokkru sem ég hef fengið frítt) en ég sýni líka flíkur og fleira. Ég mun fjalla um einhverjar af vörunum sem ég sýni í myndbandinu hér á blogginu en þið megið endilega láta vita ef þið viljið ítarlega færslu um eitthvað. En endilega horfið og eigið frábæran mánudag x

Wednesday, January 21, 2015

VIDEO | SOFT GLAM W. BRIGHT PINK LIPS






Another day, another video! This time around it's a very simple look with a pop of pink on the lips. I love these kinds of looks, it's simple yet glam. You can totally rock this make up with any lip colour you want but I opted for a bright pink lippie from Ilia, an all natural brand that recently came here to Iceland (available on nola.is). The beautiful lipstick is called Neon Angel*, it's feels lovely on the lips and keep them moisturised all day long. I was pleasantly surprised at how well it performed, natural brands can sometime lack in pigmentation and lasting power but that was definitely not the case with this one. Beautiful pigmentation and color that lasted for a good 5 hours before I noticed fading. If Ilia is available in your country you should check it out! Anywho, enough about pink lipsticks - here's the list of products used (it's in Icelandic, sorry guys.. but you can just mute and play your own music! haha) x

SKIN MAC Strobe Cream, MAC Studio Fix Fluid - NW15, MAC Pro Long-Wear Concealer - NC15, Hourglass Ambient Lighting Powder - Diffused Light, Sleek Contour Kit - Light, theBalm Mary-Lou Manizer, MAC Mineralized Blush - Warm Soul EYES MAC Paint Pot - Painterly, MAC Mineralized Eyeshadow - Natural Vigor, MAC Eye Kohl  - Costa Riche, Lancome Grandiose Mascara*, Tanya Burr Individual Lashes* LIPS Ilia - Neon Angel*, MAC Lip Liner - Magenta 

//Annar dagur, annað myndband! Í þetta skiptið gerði ég mjög einfalda förðun með björtum bleikum vörum. Ég elska svona lúkk, einföld en samt glam. Þú getur parað hvaða varalit sem er með þessari förðun en ég valdi einn bleikan frá Ilia, sem er all natural merki sem er selt á nola.is. Varaliturinn heitir Neon Angel* og er æðislegur á vörunum, hann heldur þeim nærðum allan daginn. Hann kom mér virkilega á óvart þar sem að vörur frá náttúrulegum förðunarmerkjum eru ekki alltaf pigmentuð eða endast ekki lengi, þessi stóð svo sannarlega við sitt og var mjög pigmentaður og entist í góða 5 tíma áður en hann byrjaði að hverfa. Mæli með því að kíkja á Ilia vörurnar á nola.is! En nóg um bleika varaliti - hér er vörulisti! Ég minni svo á Make Up Geek gjafaleikinn sem er í gangi í síðasta YT myndbandinu hérna

HÚРMAC Strobe Cream, MAC Studio Fix Fluid - NW15, MAC Pro Long-Wear Concealer - NC15, Hourglass Ambient Lighting Powder - Diffused Light, Sleek Contour Kit - Light, theBalm Mary-Lou Manizer, MAC Mineralized Blush - Warm Soul AUGU MAC Paint Pot - Painterly, MAC Mineralized Eyeshadow - Natural Vigor, MAC Eye Kohl  - Costa Riche, Lancome Grandiose Mascara*, Tanya Burr Individual Lashes* VARIR Ilia - Neon Angel*, MAC Lip Liner - Magenta


Wednesday, January 7, 2015

REVIEW | ANASTASIA DIPBROW POMADE



FROM LEFT TO RIGHT : DIPBROW POMADE IN SOFT BROWN, CHOCOLATE.

DIPBROW POMADE IN CHOCOLATE (+ ANASTASIA BEVERLY HILLS CLEAR BROW GEL)

Yes you guys, I finally got it - the Anastasia Dipbrow Pomade. This thing has been on my wish list ever since it first came out but as I would have had to buy it online I wasn't quite sure which shade to pick up. In Florida I finally got to see the jar of magic in person and picked up two shades, sadly they are still not the perfect match but I can definitely make one of them work.

If you aren't familiar with Dipbrow it's almost like a gel liner for your eyebrows. It's best applied with a very thin angled brush (I use my MAC 263 and it works beautifully) and you only need the tiniest bit of product. I barely dip my brush into the product and then take off the excess on the sides of the pot - I'm not kidding, you seriously need the tiniest bit. A lot of people say that there's a learning curve with Dipbrow but I found it easy to work with from the beginning, maybe because I already knew that there should barely be anything on the brush or maybe I am just destined to work with the Pomade.. who knows?

Anywho, I picked up the shades Soft Brown and Chocolate, both way darker than my hair colour but hey, I'm a rebel (not really, I just like a darker brow). A lovely lady at Sephora tried Soft Brown on me and it looked great but when I tried it at home it was just a tad bit too warm so I have been using Chocolate and I love it (I have it on here and here). Is it very dark? Yes, yes it is but as I've said like a billion times already, I only use a tiny little bit and am very careful with it. Even though I love the look of Chocolate I think I'll pick up either Blonde or Taupe very soon, just to try it out. This thing stays on your brows all day long without any smudging or fading, it really is brilliant.

Have you tried Dipbrow? Do you like it? 

//Já, ég á loksins Anastasia Dipbrow Pomade. Þessi dúlla hefur verið á óskalistanum síðan hún kom fyrst út en ég var ekki 100% með hvaða lit ég ætti að taka (að versla á netinu er ekki alltaf auðvelt) svo ég keypti það aldrei. Í Florida fékk ég svo loksins að sjá þessa töfradollu með mínum beru augum og valdi mér tvo liti, þeir passa ekki fullkomnlega en ég næ að láta annan þeirra virka.

Ef þú þekkir ekki Dipbrow þá er það eiginlega eins og gel liner fyrir augabrúnirnar. Það er best að nota mjóan skáskorinn bursta (ég nota MAC 263 og hann er yndislegur) og þú þarft bara ogguponsu lítið af vöru. Ég rétt dýfi burstanum ofan í dolluna og þurrka síðan af honum við brúnina (á dollunni) - ég er ekkert að djóka, þú þarft bara pínkupons. Margir segja að það taki tíma að læra á Dipbrow en mér fannst strax auðvelt að vinna með það, kannski af því að ég vissi að það þyrfti að setja lítið á burstann eða kannski er mér bara ætlað að vinna með Dipbrow.. hver veit?

Allavega, ég keypti litina Soft Brown og Chocolate, báðir miklu dekkri en hárið mitt en ég er rebel (kannski ekki, ég vil bara dekkri brúnir). Yndisleg dama sem vann í Sephora prófaði Soft Brown á mér og hann leit vel út en þegar ég kom heim og prófaði aftur þá fannst mér hann of hlýr, svo ég hef verið að nota Chocolate og hann er frábær (ég notaði hann t.d. hér og hér). Er hann mjög dökkur? Já, já það er hann - en eins og ég hef sagt 10 sinnum nú þegar þá nota ég bara mjög lítið í einu og fer varlega. Eins og mér finnst Chocolate vera flottur þá ætla ég samt að prófa að kaupa Blonde eða Taupe. Dipbrow helst á allan daginn og hreyfist ekki, virkilega yndislegt.

Hefur þú prófað Dipbrow? Fýlar þú það?



Thursday, December 18, 2014

REVIEW | COLOUR POP LIPPIE STIXS + LIPPIE PENCILS




LIPPIE STIXS AND LIPPIE PENCILS, FROM LIGHTEST TO DARKEST : SKIMPY LIPPIESTIX (GLOSSY) + SKIMPY PENCIL, FRIDA LIPPIE STIX (SATIN) + FRIDA LIPPIE PENCIL, BRINK LIPPIE STIX (MATTE) + BRINK LIPPIE PENCIL, LUMIÉRE LIPPIE STIX (MATTE) + LUMIÉRE LIPPIE PENCIL, LEATHER LIPPIE STIX (MATTE) + LEATHER LIPPIE PENCIL, CREATURE LIPPIE STIX (MATTE) + CREATURE LIPPIE PENCIL.

I've got some very exciting products to share with you guys today - the Lippie Stixs and Lippie Pencils from Colour Pop. Colour Pop is a new brand in the make up world that has already got a huge  following - all thanks to their unique shade selection, cute packaging and affordable price tag. Every product they offer is only $5 a pop! As they only offer shipping to the US at the moment (they are working on international shipping) I made an order and got it shipped to me while I stayed in Florida. All in all I got 20 products for only $95 - that's crazy good in my opinion! I did get a few of their beautiful shadows but I'll talk about those in another post.

The Lippie Stixs come in four different finishes; pearlized, glossy, satin and matte. Me, being a matte lip lover picked up 4 of the matte, 1 glossy and 1 satin.  Both the satin and matte are fully opaque in one swipe and they last on the lips all day (the matte ones last a bit longer), the glossy one is a bit more sheer but still more opaque than you'd think. The Lippie Stixs come in a white tube that you can twist up and down for more product, the lipstick is a bit thinner then normal lipsticks which I happen to like, it makes it easier to get a crisp line and not go all over the place. For every Lippie Stix there is a coordinating Lippie Pencil, you don't need the pencil as well but it definitely makes the Lippie Stix last longer and gives the lips a bit more definition. The Lippie Pencils are creamy and are super easy to apply, I actually think they they might be better than MAC lip liners which have always been my favorites.

Together these little guys create the perfect lip that lasts all day. I can honestly say that these have already made it into my top 3 lipstick formulas, they are that good. The brand is also cruelty free and most of the products are totally vegan! You should check them out! (you can start making a wishlist even if you aren't in the US, I've got a feeling that they'll offer international shipping very soon) x


//Ég er með alveg ótrúlega spennandi vörur í dag - Lippie Stixs og Lippie Pencils frá Colour Pop. Colour Pop er glænýtt merki í förðunarheiminum sem er þó strax búið að slá í gegn þökk sé flottu litunum þeirra, sætu pakkningunum og ódýra verðmiðanum. Allar vörurnar hjá Colour Pop kosta bara $5 dollara stykkið (ca. 600 kr)! Meðan ég var í Ameríkunni greip ég tækifærið og pantaði mér frá þeim (eins og er bjóða þau aðeins uppá sendngu í BNA, það er hinsvegar verið að vinna í restinni af heiminum!). Ég pantaði alls 20 vörur og kostaði það samtals $95 (ca. 12 þús.) - það finnst mér brjálæðislega gott verð. Ásamt varalitunum og blýöntunum pantaði ég líka nokkra fallega augnskugga en ég tala um þá seinna.

Lippie Stixs eru til í 4 áferðum : pearlized, glossy, satin og matte. Ég elska mattar varir svo ég keypti mér 4 matta liti, 1 glossy og 1 satin. Satin og Matte litirnir þekja alveg í fyrstu umferð og endast allan daginn (matte endist aðeins lengur en satin), glossy þekur ekki alveg jafn vel en þó meira en ég átti von á. Lippie Stixs varalitirnir koma í hvítri "túbu" sem þú getur skrúfað upp og niður fyrir meiri vöru, varaliturinn er mjórri en flestir varalitir sem mér finnst bara auka plús því þá er auðveldara að gera varirnar fínar án þess að fara útum allt. Fyrir hvern Lippie Stix er til Lippie Pencil í stíl, það er ekki nauðsynlegt að kaupa bæði en blýanturinn hjálpar til við að móta varirnar og liturinn helst á extra lengi. Lippie Pencils eru kremaðir og mjög auðveldir í notkun, finnst þeir meira að segja betri en MAC varablýantarnir sem hafa alltaf verið í uppáhaldi.

Lippie Stix og Lippie Pencil gera saman fullkomnar varir sem endast allan daginn. Ég get í alvöru sagt að þessir varalitir eru strax komnir í topp 3 listann hjá mér - þeir eru það góðir. Allar vörurnar eru líka cruelty free (ekki prófaðar á dýrum) og flestar vörurnar eru líka alveg vegan - stór plús í minni bók! Ég mæli með því að skoða síðuna hjá þeim og búa til óskalista, ég hef það á tilfinningu að það sé mjög stutt í að þau bjóði uppá sendingu um allan heim x


Tuesday, December 16, 2014

REVIEW | NARS AUDACIOUS LIPSTICKS - ANNA & ANITA


NARS is one of my favorite make up brands, I love their sleek packaging and I've never been disappointed with their beautiful products. When I saw that they were releasing a new line of lipsticks with 40 new shades - I got very excited. Since the release, everyone has been raving about the gorgeous Audacious lipsticks and while I was in Florida, I picked up two, Anna and Anita.

Anna is probably one of their best sellers - it's one of those "Kylie lip" shades. Anna is a stunning mauve-y muted pink. Anita was the second one I picked up and it is a warm toned pink, very pretty and a great "your lips but better" shade. Both shades apply buttery smooth and fully opaque in one swipe and have a semi-matte finish. They don't feel drying on the lips but they don't give them tons of moisture either, so they do last very well and fade away nicely. The packaging and lipstick bullet are gorgeous! The super sleek black magnetic packaging makes me very happy and the engraved NARS gets me excited every time - I sound like such a lipstick pervert.

Beautiful lipsticks, great formula and perfect packaging? Yes, I will be picking up more shades and I think you should give them a go as well.

//NARS er klárlega eitt af mínum uppáhalds förðunarmerkjum, ég elska stílhreinu pakkningarnar og ég hef alltaf verið ánægð með fallegu vörurnar frá þeim. Þegar ég sá að það væri að koma ný varalita lína með 40 nýjum litum varð ég ansi spennt. Síðan þeir komu út hafa allir lofað Audacious varalitina út í eitt og ég verslaði mér tvo í Ameríkunni - Anna og Anita.

Anna er líklegast einn af vinsælustu litunum þeirra - svona "Kylie lip" litur. Anna er svokallaður mauve-y bleikur (fjólublár undirtónn), virkilega flottur. Seinni varaliturinn sem ég keypti heitir Anita, hann er hlýr bleikur, mjög sætur og góður "your lips but better" litur. Báðir varalitirnir eru silkimjúkir og þekja alveg í fyrstu umferð, þeir eru með semi-matte áferð. Þeir eru ekki þurrir á vörunum en þeir mýkja þær heldur ekki neitt svakalega vel. Báðir endast vel á vörunum og fjara fallega út. Pakkningarnar eru gullfallegar! Svört og stílhrein túba með segul til að loka og NARS merkið er grafið í sjálfan varalitinn - svona hlutir gera mig virkilega spennta. Ég er hálfgerður varalita perri. 

Fallegir varalitir, frábær formúla og æðislegar pakkningar? Jebb, ég er forfallinn Audacious aðdáandi og ætla mér að kaupa mér fleiri - þið ættuð að gera það líka! (fallegir varalitir eru nauðsynlegir á leiðinlegum óveðursdögum eins og þessum)



Monday, October 6, 2014

REAL TECHNIQUES - NIC'S PICKS




DUO FIBER POWDER BRUSH, CHEEK BRUSH

ANGLED SHADOW BRUSH, BASE SHADOW BRUSH, EYELINER BRUSH

The lovely Pixiwoo ladies (creators of Real Techniques) recently released a new brush set called Nic's Picks*. The set has five brushes and three of the brushes are new and exclusive to the set. Being a huge fan of Real Techniques brushes I've been very excited about this set and I must say, I am very pleased. The brushes all have silver handles, which I think is gorgeous - I actually prefer these handles to the regular colored ones, I think the silver is just stunning.

As I said, the set contains five brushes. The Duo Fiber Powder Brush I already own and love for dusting my face with a little powder or adding the tiniest bit of brush. The Cheek Brush (set exclusive) is a dense brush, a bit like the Expert Face brush but softer and bigger. I've been using this for bronzer but it's also great for foundation! The next two brushes are very similar, the Angled Shadow Brush (set exclusive) and Base Shadow Brush. The Base Shadow Brush has been one of my favorites for over a year now so I'm glad I finally have a second one, it's great for blending out eyeshadow - especially cream shadows. The Angled Shadow Brush is pretty much the same but with a angled edge, great for some crease work. Last but certainly not least is the Eyeliner Brush which is a small angled liner brush, it's great for smoking out the lashline but I love it for filling in the eyebrows.

So as for my thoughts on the set? I love it. I think the silver handles are gorgeous and the choice of brushes is just great. Just like all of the Real Techniques brushes they have synthetic hairs, are super soft and don't shed. Sam and Nic, you did well. PS. The set is limited edition so grab it while you can!

//Yndislegu Pixiwoo systurnar (eigendur Real Techniques) gáfu út nýtt sett fyrir stuttu sem kallast Nic's Picks*. Í settinu eru fimm burstar og þrír af burstunum eru glænýjir og bara til í þessu setti. Ég er mikill aðdáandi Real Techniques burstanna svo ég er búin að bíða spennt eftir settinu og ég varð ekki fyrir vonbrigðum, þeir eru æði! Burstarnir í settinu eru með silfur skafti sem mér finnst geggjað, mér finnst það mikið fallegra en venjulegu sköftin. 

En eins og ég sagði þá eru fimm burstar í settinu, allir mjög mjúkir og fínir. Duo Fiber Powder burstinn átti ég nú þegar (kom í Duo Fiber settinu, sem er ekki til á Íslandi) og finnst hann æðislegur til að dusta smávegis púðri yfir andlitið eða fyrir kinnalit. Cheek burstinn (nýr) er mjög þéttur og líkist Expert Face burstanum nema hann er mýkri og stærri. Hann er frábær fyrir sólarpúður og líka til að blanda farða í húðina. Næstu tveir burstarnir eru mjög líkir, Angled Shadow burstinn (nýr) og Base Shadow burstinn. Base Shadow burstinn er búinn að vera í miklu uppáhaldi í meira en ár, mér finnst hann æði fyrir augnskugga - þá helst krem skugga. Angled Shadow burstinn er mjög svipaður Base Shadow nema hann er skáskorinn, frábær í glóbuslínuna. Síðast en alls ekki síst er það Eyliner burstinn sem er lítill skáskorinn eyeliner bursti. Hann er mjög góður til að "smudgea" liner en mér finnst hann bestur í augabrúnirnar. 

Það er óhætt að segja að ég er virkilega ánægð með settið - silfraða skaftið er gullfallegt og burstarnir vinna vel saman. Eins og allir hinir Real Techniques burstarnir þá eru þessir úr gervihárum, hrikalega mjúkir og detta ekki úr hárum. PS. Þetta sett er "limited edition" svo að ef þú villt næla þér í það þá þarftu að drífa í því!


Wednesday, August 20, 2014

REVIEW | MAC GIRL ABOUT TOWN


MAC GIRL ABOUT TOWN LIPSTICK $16/£15.50

This lipstick, named Girl About Town, was one of my first lipsticks from MAC and has been one of my favorites for a while now. I remember it being very popular on YouTube a few years back and my favorite YouTuber at the time, Tanya Burr mentioned it in her Top 10 MAC lipsticks video - so I of course, had to get it.

Girl About Town is a beautiful and vibrant, blue based pink fuchsia shade. It has an Amplified Creme finish so it's super creamy and pigmented. This baby is opaque in one swipe and glides easily on the lips. At first it has a nice sheen but that fades away in to a nice soft matte finish. It lasts incredibly well on the lips and leaves a full on stain. If you've been looking for a good pink shade, you should check this one out - it's looks good on everyone. I mean, it's no coincidence that it's one of MAC's most popular lipsticks.

//Þessi varalitur, Girl About Town, er einn af fyrstu varalitunum sem ég keypti frá MAC og hefur verið einn af mínum uppáhalds síðan ég keypti hann. Ég man að varaliturinn var virkilega vinsæll á YouTube fyrir nokkrum árum og uppáhalds YouTuber-inn minn á þeim tíma, Tanya Burr minntist á hann í myndbandi um Topp 10 MAC varalitina sína - svo ég þurfti auðvitað að eignast hann líka.

Girl About Town er mjög fallegur blátóna bleikur. Hann er með Amplified Creme formúlu svo hann er mjög kremaður og pigmentaður. Hann þekur alveg í fyrstu stroku og það er auðvelt og þægilegt að bera hann á. Til að byrja með er smá glans á honum en glansinn fer fljótlega af. Hann endist ótrúlega vel á vörunum og skilur eftir sig "stain" (búinn að lita varirnar). Ef þú ert búin að vera að leita að fallegum bleikum varalit þá mæli ég að kíkja á Girl About Town - hann er ótrúlega fallegur og fer öllum vel! Það er engin tilviljun að þetta sé einn af vinsælustu varalitunum í MAC.


REVIEW | HELENA RUBINSTEIN MAGIC CONCEALER

HELENE RUBINSTEIN MAGIC CONCEALER IN MEDIUM (02)*

I introduce to you, the little guy that has been my rescuer for the summer; the Magic Concealer* from Helena Rubinstein. Sadly for me, my skin has been going bananas for the past 3-4 months, I don't really know what's been going but it's finally getting better. Any who, the Magic Concealer has helped me conceal those unwanted spots and dark circles. 

Packaged in a handy squeezy tube (it holds a ton of product, .5 oz/15 ml) so you can totally control how much comes out (unlike the annoying MAC Pro Long-Wear concealer) and a little goes a very long way. I have the shade Medium 02, which is a good match for me over the summer but I will need the lighter shade for the fall/winter months. The texture is very lightweight and it looks very natural, I actually wear this by itself sometimes and it simply looks like my skin (but better). The Magic Concealer is also great for concealing under the eyes and it doesn't crease.

The only con of this product is the shade range, it's only available in 3 shades. If you are in the fair-medium range, you'll most likely be able to find a good match but any lighter or darker, you will have to find something else. If you can find a match I definitely recommend giving it a try!

//Ég vil kynna ykkur fyrir bjargvætti mínum þetta sumarið - Magic Concealer* frá Helena Rubinstein. Húðin mín hefur verið hálf klikkuð síðustu 3-4 mánuðina, veit ekki alveg hvað var að en þetta er að lagast. Allavega, þá hefur Magic Concealer-inn verið æðislegur til að fela alla leiðinda bletti (bólur og annað skemmtilegt) og undir augunum.

Hyljarinn kemur í þægilegri kreisti túbu (og þú færð helling af vöru, 0.5 oz/15 ml) svo þú nærð alveg að stjórna hversu mikið kemur út (annað en með leiðinda MAC Pro Long-Wear hyljarann). Þú þarft mjög lítið og smávegis hyljari fer mjög langt. Ég nota lit Medium 02 sem er góður fyrir sumarið en í haust/vetur mun ég þurfa að nota ljósari litinn. Áferðin er mjög létt og er náttúruleg á húðinni, ég nota hyljarann mjög oft einan og það er eins og ekkert sé á húðinni. Magic Concealerinn er líka frábær undir augun og hann "crease"-ast ekki (safnast saman í línum). 

Eina leiðinlega við þennan annars frábæra hyljara er að hann kemur aðeins í þremur litum. Ef þú ert með ljósa til miðlungs húð þá ættiru að finna þinn lit en ef þú ert ljósari eða dekkri en það þá þarftu að finna eitthvað annað. Hyljarinn kostar í kringum 5200 krónur og eru Helena Rubinstein vörur t.d. seldar í Hagkaup. Þú getur fylgst með HR á Íslandi hér.


Monday, August 18, 2014

REVIEW | LANCOME MIRACLE AIR DE TEINT



BARE FACE VS. LANCOME MIRACLE AIR DE TEINT IN 01*

FULL FACE OF MAKE UP USING LANCOME MIRACLE AIR DE TEINT IN 01*

At the beginning of the summer I was lucky enough to be gifted Lancome's newest foundation, the Miracle Air De Teint*. I have it in the shade 01, which is the tiniest bit too dark for me but when blended in to the skin it isn't too noticeable. The foundation comes in a beautiful frosted glass bottle with a dropper. It is super lightweight and blends very easily (I love using my hands with this foundation) - it's very silicony. The formula is very runny so be careful not to spill it everywhere. It is a liquid to powder foundation so it dries matte, a natural matte though. This foundation works better for people with normal/combination to oily skin, if you've got very dry skin it will cling on to dry patches.

The foundation lasts very nicely through out the day and I don't get very oily at all (I don't set it with a powder either, so that's very good). The coverage is sheer but is build able to a medium, it is very natural looking so if you are in the need of some heavy coverage, look elsewhere. It's definitively worth a try if you are looking for a new foundation and it comes in a good range of colors (I think 12-14 shades).

//Í byrjun sumarsins fékk ég í hendurnar nýjasta farðann frá Lancome sem kallast Miracle Air De Teint*. Ég er með lit númer 01 sem er aaaðeins of dökkur fyrir mig en þegar ég er búin að blanda honum almennilega í húðina tekur maður lítið eftir því. Farðinn kemur í fallegri gler flösku með dropateljara. Farðinn er ótrúlega léttur og blandast auðveldlega (mér finnst best að blanda honum með fingrunum). Hann er mjög þunnur svo maður þarf að passa sig að hella ekki öllu út um allt. Farðinn er svokallaður "liquid to powder", semsagt fljótandi farði sem breytist í púður þegar búið er að blanda honum í húðina. Áferðin á húðinni er þar af leiðandi mött eftir farðann, samt mjög náttúrulega mött. Ég mæli frekar með farðanum fyrir þá sem eru með venjulega/blandaða til feita húð, ef þú ert með þurra húð gæti hann fest í þurrum blettum.

Farðinn helst vel á yfir daginn og ég glansa mjög lítið í enda dagsins (ég nota heldur ekki púður til að setja farðann svo það er mjög gott). Þekjan er mjög létt en hægt að byggja upp í miðlungs þekju, svo ef þig vantar almennilega fulla þekju þá er þetta ekki farðinn fyrir þig. Ég mæli með því að prufa þennan fallega og náttúrulega farða sem kemur í fullt af litum (held að um 12-14 litir séu í boði, veit þó ekki hversu margir eru hér á Íslandi). 


Blogger Template designed By The Sunday Studio.